
„Nú er það svo að mínir samherjar síðustu ára hafa ekki áhuga á að bjóða mig áfram til forustu í næstu sveitarstjórnarkosningum og því er komið að því að láta staðar numið í maí,“ skrifar Einar Brandsson bæjarfulltrúi úr röðum Sjálfstæðisflokksins í dag á fésbókina.
Einar hefur setið í bæjarstjórn undanfarin 16 ár og skipaði hann 2. sætið á lista flokksins fyrir fjórum árum. Ljóst að breytingar verða á skipan efstu sæta á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum sem fram fara í maí.

„Ég geng sáttur frá borði, tel að ég hafi sint mínu hlutverki vel. 16 ár er bæði langur og stuttur tími í pólitík. Lærdómsríkur tími, skemtilegur tími en líka erfiður tími. Hvet en og aftur alla sem hafa áhuga á að láta gott af sér leiða fyrir sitt sveitarfélag að gefa sig fram til starfa hvort sem það er núna aða næst. Látið ekki nettröllin hræða ykkur frá, þau eru partur af tilveruni og verðum við að lifa með þeim eins og þau verða að lifa með okkur.“
Líf Lárusdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum, hefur lýst því yfir að hún gefur kost á sér til að leiða flokkinn í næstu kosningum.
Á fimmtudaginn verður greint frá því hvernig framboðslisti Sjálfstæðisflokksins verður skipaður í kosningunum í vor.








