
Veðrið leikur við íbúa á Akranesi. Stilla, sól og snjór. Kannski er það sem koma skal – hver veit?
Daníel Elíasson, eigandi fasteignasölunnar Hákots, tók þessar myndir í dag – og skagafrettir.is fengu góðfúslegt leyfi til þess að birta þær.

Á myndunum má sjá að Akraneskaupstaður hefur gert skíðagöngubraut við æfingasvæði Knattspyrnufélagsins við Jaðarsbakka.
Við hér á skagafrettir.is hvetjum alla til þess að nýta tækifærið og njóta þess sem er í boði í veðurblíðunni.







