Laufey Skúladóttir var fjallkona Akraness í dag á þjóðhátíðardegi Íslands, 17. júní.
Þetta er í annað sinn sem Laufey fær þann heiður – en hún þreytti frumraun sína í þessu hlutverki fyrir hálfri öld.

Hún flutti ljóðið Drög að heimkomu eftir Orra Harðarson – bæjarlistamann Akraness árið 2025.







