Skipulags – og umhverfisráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt viðamiklar breytingar á fyrirkomulagi grenndarstöðva í bæjarfélaginu. 

Í dag eru þrjár grenndarstöðvar með samtals 13 gámum – en lagt er til að sameina núverandi grenndarstöðvar í eina stöð við Dalbraut. Þar á að bjóða upp á betri þjónustu, aukna lýsingu og vöktun. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins en ekki er greint frá nákvæmri staðsetning á fyrirhugaðri grenndarstöð.  

Núverandi grenndarstöðvar voru settar upp árið 2022 og var töluverð umræða um staðsetningar þeirra í aðdraganda bæjarstjórnarkosninganna vorið 2026.

Grenndarstöðvar eru í dag á bílastæði fyrir aftan Bókasafnið, á bílastæði við Byggðasafnið í Görðum og á bílastæði vestanmeginn við Bíóhöllina við Vesturgötu. 

Hér fyrir neðan er textinn úr fundargerð ráðsins.