Viktoría Rós Viktorsdóttir hefur náð frábærum árangri í pílukastíþróttinni að undanförnu. Skagakonan sigraði á sjötta mótinu í Gulldeildinni – efstu deild kvenna nýverið og er þetta annar sigur hennar en hún sigraði einnig í fimmtu umferð. 

Bróðir hennar, Ragnar Már Viktorsson, varð í öðru sæti í silfurdeildinni og leikur hann í efstu deild, Gulldeildinni, í næstu umferð. Gunnar H. Ólafsson tryggði sér áframhaldandi veru í efstu deild karla, Kristalsdeildinni. 

Alls tóku sex keppendur þátt frá Pílufélagi Akraness í þessari umferð Flórídanadeildarinnar í pílu.