
Leikmenn ÍA í 3. flokki karla í knattspyrnu hafa náð frábærum árangri á tímabilinu – en liðið er nú þegar Íslandsmeistari og leikur til úrslita um bikarmeistaratitilinn þann 3. okt. n.k. á Akranesi – en sá leikur hefst kl. 12:00.
Leikmenn í 3. flokki eru fæddir á árunum 2010 og 2011. Liðið sigraði á Alþjóðlega mótinu Rey Cup í júlí s.l.

ÍA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með 3-2 sigri gegn Breiðabliki úr Kópavogi í næst síðustu umferð Íslandsmótsins.
Breiðablik verður mótherji ÍA í bikarúrslitaleiknum þann 3. okt. n.k.
Þjálfarar liðsins eru Sigurður Jónsson, Elinbergur Sveinsson og Hafþór Pétursson.








