Skaginn 3X hlaut í gær Útflutningsverðlaun forseta Íslands sem veitt voru í 29. skipti. Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans 3X veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, var sæmd sérstakri heiðursviðurkenningu við sama tilefni. Viðurkenninguna hlýtur hún fyrir að hafa með starfi sínu hafa borið hróður Íslands víða um heim og stuðlað að jákvæðu umtali um land okkar og þjóð.
Þetta er í fyrsta sinn sem sama fyrirtæki hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017. Skaginn 3X féksk Nýsköpunarverðlaun Íslands þann 30. mars s.l. og hafa því svo sannarlega sópað að sér verðlaunum á undanförnum vikum.
Þar segir að Íslenska tækni- og framleiðslufyrirtækið Skaginn hf. fái verðlaunin fyrir að hafa náð afar athyglisverðum árangri í að þróa, framleiða og selja tækjabúnað fyrir matvælaiðnaðinn, einkum fiskvinnsluna.
„Fyrirtækið er í fremstu röð þeirra íslensku fyrirtækja sem hafa náð að brjóta sér leið inn á alþjóðlegan matvælamarkað með framleiðsluvörur sem í upphafi eru þróaðar í nánu samstarfi við íslensk framleiðslufyrirtæki. Sérstaða Skagans hf. er fólgin í byltingarkenndum tækninýjungum hvað varðar íslausa kælingu á matvælum, sjálfvirkni og lausnum við pökkun og flutning á afurðunum,“ segir í tilkynningunni en stofnun fyrirtækisins má rekja aftur til ársins 1985 þegar Ingólfur Árnason aðaleigandi Skagans hf. hóf að vinna við nýsköpun og þróun á vinnslubúnaði fyrir fiskiðnað.
Í dag er fyrirtækið rekið í þremur einingum sem eru Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. og 3X Technology á Ísafirði. Þessi þrjú systurfyrirtæki vinna þétt saman að þróun, hönnun og framleiðslu og eru framleiðsluvörurnar kynntar og seldar undir sameiginlegu merki félaganna – Skaginn 3X.
Skaginn hefur selt vörur sínar víðsvegar um heiminn en meginþunginn hvað fiskiðnað varðar er á svæðinu í kringum Norður Atlantshaf og hvað kjötiðnað varðar þá er hann mestur í Suður- og Norður-Ameríku. Síðasti landvinningur fyrirtækisins var sala á frysti fyrir kjúklingavinnslu í Chile. Á síðasta ári var m.a. unnið að uppsetningu á einni fullkomnustu uppsjávarverksmiðju í heimi, hjá Eskju á Eskifirði. Um þessar mundir er unnið hörðum höndum við að ljúka þróun og uppsetningu á vinnsludekki og sjálfvirku lestarkerfi um borð í ferskfiskskip HB Granda.
Velta Skagan í fyrra var um 4,4 milljarðar króna og heildarvelta systurfyrirtækjanna þriggja um 6,0 milljarðar króna. Í heildina voru starfsmenn um 180.
Vigdísi Finnbogadóttur veitt sérstök heiðursviðurkenning
Eins og fyrr segir var frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrum forseta, veitt sérstök heiðursviðurkenning fyrir að hafa með starfi sínu hafa borið hróður Íslands víða um heim og stuðlað að jákvæðu umtali um land okkar og þjóð.
„Sigur Vigdísar í forsetakosningunum varpaði kastljósi alheimsins á hana og á Ísland í leiðinni.
Í ræðu sinni um Vigdísi hafði Sigsteinn Grétarsson, formaður úthlutunarnefndar m.a. á orði:
„Við Íslendingar spegluðum okkur í þeirri mynd sem Vigdís dró upp af landi okkar og þjóð. Hún minnti okkur á að það er lán að vera fæddur hér á landi, hún minnti okkur á mikilvægi þess að standa vörð um íslenska tungu og kunna skil á sögu þjóðarinnar og menningu. Og ekki hvað síst minnti hún okkur á að konur og karlar eru jafnokar á öllum sviðum.“,“ segir í tilkynningunni.
Eftir að Vigdís lét af embætti hefur hún unnið að ýmsum málum, einkum tengdum menningu og tungumálum. Hún er m.a. velgjörðar sendiherra UNESCO og er meðlimur í samtökunum Council of Women World Leaders. Frá árinu 2001 hefur rannsóknarstofnun Háskóla Íslands í erlendum tungumálum verið kennd við hana og á morgun – sumardaginn fyrsta – verður nýbygging fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum vígð við hátíðlega athöfn. Þar verður starfrækt fræðslu- og upplifunarsetur og í húsinu er aðstaða fyrir fyrirlestra-, ráðstefnu- og sýningarhald. Þar verður einnig Vigdísarstofa, tileinkuð Vigdísi Finnbogadóttur, þar sem hægt verður að fræðast um líf hennar og störf.
Í tilkynningunni segir að tilgangurinn með veitingu útflutningsverðlaunanna er að vekja athygli á þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og alþjóðlegra viðskipta og heiðra þá sem hafa náð sérstaklega góðum árangri í sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu erlendis.
Verðlaunin veitt í 29. sinn
Útflutningsverðlaunin eru nú veitt í 29. sinn en þau voru fyrst veitt árið 1989. Meðal annarra fyrirtækja er hlotið hafa verðlaunin í gegnum tíðina eru Bláa lónið, CCP, Hampiðjan, Trefjar ehf, Icelandair Group og Ferðaskrifstofa bænda, og á síðasta ári hlaut Nox Medical verðlaunin.
Úthlutunarreglur kveða á um að Útflutningsverðlaun forseta Íslands skuli veitt fyrirtækjum eða einstaklingum, íslenskum eða erlendum, fyrir árangursríkt starf að útflutningi á íslenskum vörum eða þjónustu á erlendum markaði. Veiting verðlaunanna tekur mið af verðmætisaukningu útflutnings, hlutdeild útflutnings í heildarsölu, markaðssetningu á nýjum markaði, ásamt fleiru.
Í úthlutunarnefndinni sátu að þessu sinni: Örnólfur Thorsson, frá embætti forseta Íslands, Runólfur Smári Steindórsson, frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Björgólfur Jóhannsson frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, frá Alþýðusambandi Íslands og Sigsteinn Grétarsson frá Íslandsstofu, en Íslandsstofa ber ábyrgð á undirbúningi og kostnaði við verðlaunaveitinguna.