• „Við vorum orðnir leiðir á því að hafa ekkert að gera og þetta verkefni er í raun bara tilraun til að halda okkur við efnið,“ segir Örn Arnarson hjá ÍATV við skagafrettir.is Í dag kl. 16 fer fram fyrsti þátturinn hjá ÍATV þar sem rætt verður við ýmsa úr samfélaginu á Akranesi ásamt því að...

  • Lögreglan á Vesturlandi var rétt í þessu að birta nýjustu upplýsingar um stöðuna á Covid-19 faraldrinum. Í gær greindist ekkert nýtt smit á Vesturlandi. Alls hafa 40 Covid-19 smit verið greind á Vesturlandi en aðeins þrú ný smit hafa verið greind frá því á sunnudeginum 5. apríl. Á Akranesi hafa því 12 Covid-19 smit verið...

  • Ingi Björn Róbertsson, fjöllistamaður og blikksmiður, fær nú tækifæri til þess að láta ljós sitt skína á útvarpsstöðinni K100. Iddi Biddi eins og Skagamaðurinn er kallaður er með innslög í morgunþættinum Ísland Vaknar. Hér fyrir neðan má heyra skemmtilegt innslag frá Idda Bidda frá því á föstudag.

  • Kolmunnaveiði á gráa svæðinu suður af Færeyjum er hafin af góðum krafti og þar á meðal er Bjarni Ólafsson AK 70. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt við Gísla Runólfsson skipstjóra á þeim „gula“ eins og margir Skagamann kalla Bjarna Ólafsson. Við köstuðum klukkan 10 í gærkvöldi austarlega á gráa svæðinu, drógum í 10 tíma og...

  • Kitesurfing eða sjódrekaflug er mikið stundað við Langasand á Akranesi og þykir svæðið vera eitt það besta á landinu. Þessi unga íþrótt er blanda af brimbrettaiðkun og seglbrettasiglingu í bland við fugdrekaflug. Notaður er kraftdreki sem dregur viðkomandi áfram á bretti á sjó eða vatni. Aðallega eru notaðir LEI-drekar og er algeng stærð á þeim...

  • Skagakonurnar Eva Laufey Kjaran og Hallbera Guðný Gísladóttir eru í aðalhlutverkum í nýjasta þættinum „Elda með Evu“ sem sýndur er á Stöð 2. Hallbera Guðný er í hópi bestu knattspyrnukvenna landsins og hefur leikið lykilhlutverk í landsliði Íslands undanfarin ár. Styrkur hennar hefur ekki verið í eldhúsinu eins og sjá má í þessu skemmtilega innslagi...

  • Það var töluverður áhugi hjá fyrirtækjum og verktökum á verkefnum sem Akraneskaupstaður bauð út á dögunum. Það var fyrra var gangstéttaverkefni þar sem að kostnaðaráætlun nam tæplega 21,9 milljónum kr. Alls buðu sex aðilar í það verk. Það síðara var verkefni sem tengjast götuviðhaldi og var kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar í það verk tæplega 59,9 milljónir kr....

  • Valdís Þóra Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni, hefur líkt og aðrir íslenskir atvinnukylfingar verið á Íslandi undanfarnar vikur vegna Covid-19 faraldursins. Valdís Þóra hefur keppt á þremur mótum á þessu ári á LET Evrópumótaröðinni en það er óvíst hvenær keppnishaldið á LET hefst á ný. Valdís Þóra keppti síðast á LET Evrópumótaröðinni um miðjan mars í...

  • Ekkert nýtt Covid-19 smit var greint í gær á Vesturlandi. Alls hafa 40 Covid-19 smit verið greind á Vesturlandi. Á Akranesi hafa því 12 Covid-19 smit verið greind og eru 13 í sóttkví á Akranesi. Eins og sjá má á töflunum hér fyrir neðan hefur ásatandið lagast mikið á Vesturlandi á rúmri viku. Aðeins þrú...

  • „Við erum bara brattir og erum að nýta tímann í fyrirhugaðar breytingar veitingasalnum á Gamla Kaupfélaginu,“ segir Valdimar Ingi Brynjarsson einn af eigendum Gamla Kaupfélagsins við Skagafréttir. Samkomubann, fækkun ferðamanna og ýmsir aðrir þættir vegna Covid-19 veirunnar hafa sett veitingahús út um alla veröld í undarlega stöðu. Valdimar og félagar hans á GK hafa brugðist...

Loading...