Hallbera Guðný Gísladóttir kemst í dag í merkilegan hóp landsliðskvenna í knattspyrnu.
Skagakonan leikur í dag sinn 100. landsleik fyrir A-landslið kvenna.
Hallbera Guðný er 33 ára gömul og leikur með Val en hún lék með yngri flokkum ÍA og mfl. ÍA á árum áður.
Aðeins sjö konur hafa leikið 100 A-landsleiki frá upphafi og verður Hallbera Guðný sú áttunda.
Leikjahæstu leikmenn A-landsliðs Íslands:
Katrín Jónsdóttir (133)
Sara Björk Gunnarsdóttir (121)
Margrét Lára Viðarsdóttir (117)
Dóra María Lárusdóttir (114)
Hólmfríður Magnúsdóttir (112)
Þóra B. Helgadóttir (108)
Edda Garðarsdóttir (103)
„Ef allt gengur að óskum á æfingunni í dag þá spila ég minn 100. landsleik. Ég hef svo sem ekkert verið að horfa í þessa tölu en að sjálfsögðu er þetta ákveðinn áfangi á ferlinum með landsliðinu. Það verður mjög gaman að komst í þennan góða hóp sem hefur náð að spila 100 leiki fyrir íslenska landsliðið,“ sagði Hallbera í samtali við mbl.is.
Viðtalið má lesa í heild sinni hér:
Auglýsing
Auglýsing