Eins og fram hefur komið á skagafrettir.is er Angela Árnadóttir bæjarlistamaður Akraness fyrir árið 2026. 

Nánar hér: 

Hér fyrir neðan er listi sem Skagafréttir tók saman yfir þá sem hafa fengið þessa nafnbót frá árinu 1992. 

 

Eftirtaldir listamenn hafa fengið titilinn bæjarlistamaður Akraness:

  • 2026: Angela Árnadóttir, myndlistarkennari.
  • 2025: Orri Harðarson, tónlistarmaður og rithöfundur. 
  • 2024: Birgir Þórisson, tónlistarmaður. 
  • 2023: Eva Björg Ægisdóttir, rithöfundur. 
  • 2022: Hallgrímur Ólafsson, leikari og tónlistarmaður.
  • 2021: Valgerður Jónsdóttir, tónlistarkona.
  • 2020: Tinna Rós Steindórsdóttir, myndlistakona.
  • 2019: Bjarni Skúli Ketilsson, myndlistamaður
  • 2018: Eðvarð Lárusson, tónlistamaður.
  • 2017: Kolbrún S. Kjarval leirlistakona
  • 2016: Slitnir strengir, þjóðlagasveit
  • 2015: Gyða L. Jónsdóttir Wells myndhöggvari
  • 2014: Erna Hafnes myndlistakona
  • 2013: Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur
  • 2012: Sveinn Arnar Sæmundsson orgelleikari
  • 2011: Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópransöngkona
  • 2010: Dýrfinna Torfadóttir gullsmiðu
  • 2005-2009:
  • Friðþjófur Helgason ljósmyndari (eitt kjörtímabil)
  • 2004: Bragi Þórðarson bókaútgefandi og rithöfundur
  • 2003: Enginn hlaut nafnbótina þetta árið en menningarmála- og safnanefnd ákvað að nýta starfsstyrk fyrir menningarviku í október (fyrstu Vökudagarnir)
  • 2002: Kristján Kristjánsson rithöfundur og bókaútgefandi
  • 2001: Smári Vífilsson tenórsöngvari
  • 1999-2000: Enginn hlaut nafnbótina þessi ár en starfslaun bæjarlistamanna var varið til að styrkja listamenn á Akranesi sem gerðu listaverk tengd viðfangsefninu Sjávarlist.
  • 1998: Kristín Steinsdóttir rithöfundur
  • 1997: Bjarni Þór Bjarnason myndlistarmaður
  • 1996: Philippe Ricart handverksmaður
  • 1994-1995: Guttormur Jónsson högglistamaður
  • 1993: Helena Guttormsdóttir myndlistarmaður
  • 1992: Hreinn Elíasson myndlistarmaður