Gríðarlegur áhugi á Rock of Ages – örfáir miðar eftir á frumsýninguna



Það er mikill áhugi hjá Skagamönnum á Rock of Ages sem er kraftmikill Brodway söngleikur eftir Chris D’Arienzo.

Aðeins örfáir miðar eru eftir á frumsýninguna sem fram fer föstudaginn 22. mars.

Sýningin er ein sú stærsta og umfangsmesta sem FVA og Bíóhöllin hafa sett upp.

Verkefnið er unnið í samvinnu við Tónlistarskóla Akraness.

Fjöldi duglegra nemenda kemur að sýningunni með ýmsum hætti. Þar má nefna gerð leikmyndar, tæknimál, leikskrá, förðun, búningar svo fátt eitt sé nefnt.

Hljómsveitin hefur æft stíft undir handleiðslu kennara og söngvarar hafa einnig fengið góða leiðsögn að undanförnu.

Sýningin býður upp á allan tilfinningarússíbanan og er stanslaus skemmtun sem enginn má missa af,“ segir í tilkynningu frá leikhópnum.

Söngleikurinn Rock Of Ages gerist í Los Angeles um miðjan níunda áratug síðustu aldar, þar sem aðal atriðið var að vera með sæmilegt magn af hári, góðan drykk í hönd og stóra drauma, allt er mögulegt.

Allskyns fólk gengur um götur The Sunset strip, allt frá þýskum bræðrum í viðskiptahugleiðingum til stærstu rokkstjörnu heims.

Hér fyrir neðan eru fjölmörg viðtöl við nemendur sem leika hlutverk í sýningunni.

Auglýsing



Auglýsing