Ekkert nýtt Covid-19 smit greindist á Vesturlandi í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.
Á landinu öllu greindust 30 einstaklingar með Covid-19 og voru 18 þeirra í sóttkví.
Á Akranesi eru 16 einstaklingar í einangrun vegna Covid-19 en sama staða var á fimmtudaginn á Akranesi.
Í sóttkví eru alls 48 einstaklingar á Akranesi eða 10 fleiri en í gær.