Í dag var áttundi glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Það er óhætt að segja að verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi.
Akranes og Steinn Steinarr koma við sögu í dag þar sem að einn af Fjallabræðrunum, Sveinbjörn Hafsteinsson syngur lag eftir Leif Jónsson – en þeir Sveinbjörn og Leifur ólust báðir upp á Akranesi. Textinn er eftir Stein Steinarr.
Alls er 24 tónlistaratriði á dagskrá og er einn gluggi opnaður kl. 9 á hverjum morgni fram að jólum.
Mikil leynd hvílir yfir flytjendum en atriðin voru tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu í Görðum.
Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir eru kynnar í þessu verkefni. Heiðar Mar Björnsson sá um upptökur og Sigurður Ingvar Þorvaldsson sá um hljóðupptökurnar.
Hljómsveitarstjórinn er Birgir Þórisson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hann er einnig í Húsbandinu sem spilar undir hjá tónlistarfólkinu.
Auk hans eru Pétur Valgarð Pétursson (gítar), Sigurþór Þorgilsson (bassi) og Þorvaldur Kári Ingveldarson (trommur).
8. desember:
7. desember:
6. desember:
5. desember:
4. desember:
3. desember:
2. desember:
1. desember: