Málefnasamningur Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins vegna meirihlutasamstarfs í bæjarstjórn Akraness kjörtímabilið 2022 – 2026 var undirritaður í dag. Sævar Freyr Þráinsson verður áfram bæjarstjóri. Í málefnasamningnum eru 84 atriði og það eru því fjölmörg verkefni sem bíða úrlausnar hjá meirihlutanum.
Í málefnasamningnum kemur fram að leitast verði við að eiga gott samstarf við alla flokka í bæjarstjórn og að stjórnsýslan snúist um að veita íbúunum góða þjónustu með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Lögð verður áhersla á gott samstarf við íbúa og áframhaldandi uppbyggingu og þróun á virku íbúalýðræði. Áfram verður unnið að því að styrkja fjárhagsstöðu bæjarsjóðs.
Málefnasamningurinn er svohljóðandi:
ATVINNA OG NÝSKÖPUN
- Standa með og styðja fyrirtækin á Akranesi.
- Laða sérstaklega til okkar ný fyrirtæki í Flóahverfið – grænir iðngarðar.
- Stækka og bæta Akraneshöfn sem lífæð í atvinnulífi bæjarins.
- Styðja við starf Þróunarfélags á Grundartanga svo tækifæri til atvinnusköpunar verði fullnýtt.
- Tryggja framboð hentugra lóða og húsnæðis fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi.
- Stuðla að samráðsvettvangi milli fyrirtækja og bæjaryfirvalda á Akranesi með það að markmiði að auka samskipti og samstarf, svo atvinnurekendur í bænum hafi stuðning hver af öðrum.
- Nýta tækifæri til atvinnusköpunar í samvinnu við Þróunarfélagið á Breið m.a með þróun skipulags til uppbyggingar á íbúabyggð í bland við atvinnuþróun með áherslu á hátækni, nýsköpun og sjálfbærni.
- Leggja áfram áherslu á upplýsinga- og kynningarmál í samvinnu við atvinnulífið á Akranesi, til að koma bæjarfélaginu enn betur á kortið.
- Stuðla að því að sjávarútvegur vaxi og dafni á Akranesi með góðri samvinnu og samstarfi við fyrirtæki í sjávartengdri starfsemi.
- Efla og styðja fólk með langvarandi og tímabundnar stuðningsþarfir til samfélags- og atvinnuþátttöku í samvinnu við atvinnulífið.
- Vinna að þróun skipulags við Grjótkelduflóa til uppbyggingar atvinnustarfsemi.
- Halda á lofti mikilvægi þess að lagning Sundabrautar hefjist sem fyrst.
FRAMKVÆMDIR OG SKIPULAGSMÁL
- Halda áfram að lagfæra götur bæjarins, endurskoða langtímaáætlun um viðhald og endurnýjun gatna og gera hana sýnilega.
- Horfa ávallt til lýðheilsusjónarmiða í skipulagi nýrra hverfa og við þéttingu byggðar í eldri hverfum bæjarins.
- Sinna vel viðhaldi á eignum bæjarins og gera viðhaldsáætlanir sem eru sýnilegar öllum.
- Halda áfram að bæta aðgengi að Garðalundi með því að lagfæra bílastæði og aðkeyrslu og horfa til aðgengis fyrir fatlaða.
- Lýsa betur upp útivistarsvæði, svo sem göngustíga, opin svæði, leikvelli og skólalóðir.
- Setja í forgang þarfir hjólandi, gangandi, sjónskertra og hreyfihamlaðra við endurhönnun gatna og stíga.
- Vinna hratt að uppbyggingu áhaldahúss, dósamóttöku og Búkollu.
- Gera framtíðaráætlun varðandi húsnæði stjórnsýslunnar.
- Gera framtíðaráætlun um skipulag miðbæjarins í góðu samtali við íbúa.
VELFERÐARMÁL
- Bjóða upp á fjölbreytt búsetuúrræði fyrir fólk með fötlun, m.a. með samstarfi við húsnæðisfélög fatlaðra um byggingu fleiri búsetukjarna.
- Stefna að opnun skammtímadvalar fyrir fötluð börn og leitast eftir samvinnu við nágrannasveitarfélög.
- Veita félagslega þjónustu af metnaði og mannúð og leggja áherslu á úrræði til að virkja fólk til frumkvæðis og sjálfshjálpar.
- Standa myndarlega og hratt að byggingu nýrrar samfélagsmiðstöðvar og styðja við faglegt og öflugt starf hennar.
- Haga ferðaþjónustu aldraðra og fatlaðra þannig að hún mæti daglegum þörfum þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda.
- Þróa samþætta þjónustu í þágu farsældar barna með samvinnu mismunandi sviða í þjónustu kaupstaðarins og öðrum sem koma að velferð barna, svo sem íþróttahreyfingunni, heilsugæslu og löggæslu.
- Vera til staðar í góðu samstarfi við HVE og styðja við áframhaldandi framþróun.
MÁLEFNI ALDRAÐRA
- Stuðla að því að þjónusta við eldri borgara sé fjölbreytt og einstaklingsmiðuð með það að leiðarljósi að aldraðir geti búið með reisn á heimilum sínum og haldið sínum lífsgæðum.
- Styðja við uppbyggingu hjúkrunarheimilisins Höfða og hefja vinnu við stækkun þess.
- Styrkja heilsueflingu aldraðra, meðal annars með samstarfi við íþróttahreyfinguna.
- Vinna áfram að uppbyggingu á fjölbreyttum búsetuúrræðum fyrir eldra fólk, meðal annars með samvinnu við óhagnaðardrifin leigufélög.
- Þróa samþætta þjónustu í lífsgæðakjarna við Dalbraut í samvinnu við hagsmunaaðila.
SKÓLA- OG FRÍSTUNDAMÁL
- Hefja strax undirbúning að nýjum leikskóla á Neðri-Skaga.
- Styðja við aukna tæknivæðingu í grunnskólum með kaupum á fartölvum fyrir nemendur í 8.-10. bekk til notkunar í námi.
- Hækka mótframlag til foreldra vegna vistunar hjá dagforeldrum, til móts við mismuninn á leikskólagjaldi og gjaldi til dagforeldra.
- Hlúa að móðurmáli og íslenskukennslu barna sem eru með annað móðurmál en íslensku.
- Efla fræðslu fyrir foreldra barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla.
- Standa vörð um gott innra starf grunn- og leikskóla, meðal annars með því að tryggja góða aðstöðu fyrir starfsfólk og nemendur.
- Tryggja frístundaheimilum góða aðstöðu til að mæta gæðaviðmiðum um starfsemi þeirra og endurskoða opnunartíma þeirra.
- Stuðla að auknu samstarfi milli skóla, frístundastarfs og íþróttahreyfingarinnar.
- Efla þátttöku ungmenna og þróa vinnuskólann í takt við nýja tíma.
- Efla stoðþjónustu í grunn- og leikskólum.
ÍÞRÓTTIR OG HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG
- Hafa markmið heilsueflandi samfélags til hliðsjónar í öllu starfi Akraneskaupstaðar.
- Vinna og innleiða íþróttastefnu, meðal annars með áherslu á þátttöku íþróttahreyfingarinnar í þjónustu í þágu farsældar barna.
- Áframhaldandi uppbygging á glæsilegri íþróttamiðstöð á Jaðarsbökkum
- Sjá til þess að tómstundastyrkur barna hækki í takt við aðrar hækkanir hjá bænum og endurskoða aldursmörk og upphæðir.
- Endurskoða opnunartíma á íþróttamannvirkjum í virku samtali við notendur.
- Vinna með íþróttahreyfingunni að bættri aðstöðu félaganna, setja upp sýnilega áætlun og framtíðarsýn.
- Koma upp svæðum til nota fyrir útivist að vetri til svo sem skautasvelli og aðstöðu til gönguskíða iðkunar þegar aðstæður gefa til efni til.
- Byggja upp Bjarnalaug og nærliggjandi svæði með áherslu á tækifæri til hreyfingar og heilsuræktar
MENNING OG SÖFN
- Virkja og efla miðbæinn í virku samtali við íbúa
- Hlúa að öflugu starfi Tónlistarskólans og öðru tónlistarstarfi á Akranesi.
- Nýta Tónberg betur sem vettvang menningar og lista.
- Styðja við fjölbreytta starfsemi bókasafns, héraðsskjalasafns og Ljósmyndasafns Akraness.
- Finna geymsluhúsnæði fyrir muni Byggðasafnsins.
- Halda áfram að merkja helstu fornminjar, örnefni og sögustaði í bæjarlandinu.
- Leita eftir samvinnu við húseigendur til að setja upp upplýsingaskilti við gömul hús í bænum þar sem greint er frá sögu hússins.
- Gera stefnumótun um áframhaldandi uppbyggingu og viðhald á safnasvæðinu í framhaldi af nýrri og glæsilegri grunnsýningu.
- Nýta safnasvæðið til lifandi viðburðahalds.
- Bæta viðhald á útilistaverkum í bænum, merkja þau og lýsa þau upp.
- Setja upp upplýsingaskjái á völdum stöðum í bænum þar sem sjá megi upplýsingar um viðburði og fleira.
UMHVERFISMÁL
- Koma á grenndarstöðvum innan bæjarins svo íbúar geti losað sig við endurvinnsluefni með umhverfisvænni hætti.
- Fjölga flokkunarúrræðum við heimili bæjarins, bæta við lífrænni flokkun.
- Standa að reglulegri fræðslu um flokkun endurvinnsluefna og úrgangsforvarnir í samvinnu við þjónustuaðila.
- Auka möguleika íbúa á að koma hlutum í endurnýtingu meðal annars með uppbyggingu á Búkollu.
- Fegra aðkomuna inn í bæinn, bæði við Þjóðbraut og Kalmansbraut-Kirkjubraut.
- Fegra bæinn með gróðri og hlúa að opnum svæðum svo sem Merkurtúni, Akurshól, Klapparholti og Garðalundi.
- Tengja betur göngu-, hjóla- og hlaupastíga og fjölga bekkjum meðfram þeim.
- Vinna áfram að samfelldri hjóla- og gönguleið hringinn í kringum bæinn.
- Bæta aðgengi að náttúruperlum okkar og halda áfram að bæta gönguleiðir að og meðfram strandlengjunni.
FERÐAMÁL
- Að Akraneskaupstaður setji sér stefnu í ferðamálum.
- Halda áfram að byggja upp útivistarsvæði og aðra lykilstaði fyrir bæjarbúa og ferðamenn.
- Stuðla að því að hótel muni rísa á Akranesi.
- Bæta upplýsingagjöf til ferðamanna, m.a. með því að fara vel yfir skilti og merkingar í bænum og með því að koma fyrir upplýsingaskjám á helstu viðkomustöðum ferðamanna.
- Vekja athygli á Akranesi sem góðum kosti fyrir fyrirtæki sem starfa í ferðaþjónustu.
- Bjóða upp á Skagapassann sem veitir aðgang með afslætti að t.d. söfnum, sundlaugum, viðburðum, í Guðlaugu og í vitann.
- Stuðla að samráðsvettvangi ferðaþjónustuaðila á Akranesi.
- Vekja athygli á íþróttasvæði, nýrri íþróttamiðstöð og náttúruperlum sem möguleika fyrir heilsutengda ferðaþjónustu.
STJÓRNSÝSLA OG ÍBÚALÝÐRÆÐI
- Vinna langtímastefnu sem styður við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna með skýrum markmiðum og stefnumiðaðri aðgerðaáætlun og fjárhagsáætlun. Aðgerðir samstilltar í samræmi við stefnu og lagt mat á árangur og orsök frávika með skjótum hætti.
- Halda reglulega íbúafundi um atvinnumál, menningarmál, skipulagsmál, skólamál og önnur mikilvæg mál.
- Nýta nútímatækni við umbætur og þjónustu til að bæta og efla þjónustu við íbúa og ná fram betri nýtingu mannauðs.
- Halda áfram að virkja og þróa rafræna íbúagátt og stafræna þjónustu Akraneskaupstaðar með það að markmiði að auka upplýsingaflæði til bæjarbúa.
- Setja í gang rafrænan „óskalista“ bæjarbúa varðandi verkefni sem þarf að leysa.
- Kanna reglulega gæði þjónustunnar sem Akraneskaupstaður veitir, með íbúakönnunum.
- Viðhalda faglegum vinnubrögðum í rekstri bæjarins og styðja við framfarir, m.a. í greiningarvinnu og stjórnun innkaupa.
- Halda áfram að sýna ábyrgð með vandaðri áætlanagerð og öruggri fjármálastjórn.