Draumavika hjá Hafsteini í golfinu – fór tvívegis holu í höggi



Hafsteinn Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og sló draumahöggið í golfi – tvívegis í sömu vikunni á Garðavelli. Hafsteinn fór holu í höggi á 18, braut mánudaginn 11. júlí og þremur dögum síðar sló hann golfboltann á ný ofaní holuna í upphafshögginu – og að þessu sinni á 8. braut Garðavallar.

Hafsteinn á töluvert í land með að bæta heimsmet Bandaríkjamannsins Norman Manley sem fór 59 sinnum holu í höggi á árunum 1964-1979.

Á hverju ári eru um 150.000 draumahögg slegin á heimsvísu. Allir kylfingar hafa látið sig dreyma um að fara holu í höggi en hverjar eru líkurnar á því að slíkt gerist?

12.500 – Meðalkylfingur þarf 12.500 tilraunir til þess að ná því að fara holu í höggi.

5.000 – Lágforgjafarkylfingur þarf um 5.000 tilraunir til þess að slá boltann ofan í holuna í teighögginu.

2.500 – Atvinnukylfingar þurfa aðeins færri tilraunir, eða um 2.500, til þess að sjá boltann detta ofaní holuna eftir upphafshöggið.

200 ára biðtími – Meðalkylfingur þarf 200 ár til þess að ná draumahögginu en þeir kylfingar sem leika 75 hringi að meðaltali á ári þurfa aðeins að bíða í 30 ár eftir að ná því að fara holu í höggi.

Á hvaða vikudegi eru mestar líkur á því að fara holu í höggi? – Jú, það er á þriðjudögum, samkvæmt tölfræðisamantekt á heimsvísu.

Ragnar Einarsson er yngsti íslenski kylfingurinn sem hefur farið holu í höggi. Hann var sex ára árið 1994 þegar hann fór holu í höggi. Arnar T. Sigþórsson er sá elsti sem hefur afrekað að fara holu í höggi af íslenskum kylfingum. Hann var 98 ára gamall árið 1985 þegar hann sló draumahöggið.