Íslandsbanki með hagstæðasta tilboðið í langtímafjármögnun Akraneskaupstaðar



Íslandsbanki var með hagstæðasta tilboðið í langtímafjármögnun Akraneskaupstaðar en þrír bankar gerðu tilboð í verkefnið.

Á síðasta fundi bæjarráðs var samþykkt að fela Sævari Frey Þráinssyni, bæjarstjóra Akraness, að vinna málið áfram

Í fundargerði bæjarráðs kemur fram að Arion banki og Landsbanki hafi lagt fram tilboð og þakkar ráðið öllum hlutaðeigandi fyrir framlögð tilboð.