Skaginn syngur inn jólin 2022 – óhefðbundið jólalag í aðalhlutverki í glugga dagsins

Menningarverkefnið Skaginn syngur inn jólin hófst fyrir skemmstu.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir halda utan um verkefnið líkt og undanfarin tvö ár. 

Á hverjum degi fram að jólum verður nýr gluggi opnaður í þessu tónlistardagatali sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum.

Í dag var tíundi gluggi dagatalsins opnaður. 

Rósa Guðrún Sveinsdóttir flytur hér lagið Kvöld í jólaborg en lagið er eftir Karl Suessforf og John Blackburn. Textinn er eftir Rósu.