Skaginn syngur inn jólin 2022 – Fjölmenni og reynsla á sviðinu í 18. glugganum

Menningarverkefnið Skaginn syngur inn jólin er langt komið en í dag var 18. glugginn opnaður.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir halda utan um verkefnið líkt og undanfarin ár. 

Á hverjum degi fram að jólum er nýr gluggi opnaður í þessu tónlistardagatali sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum.

Í dag var átjándi glugginn opnaður.

Þar er á ferðinni fjölmennur hópur þaulreyndra söngvara sem flytur frumsamið lag eftir stjórnanda kórsins. 

Kór eldri borgara á Akranesi flytur hér lagið Hugleiðing á jólanótt – lagið er eftir Lárus Sighvatsson, sem er einnig stjórnandi kórsins. Textann gerði Karl Halldórsson.