Drög að viljayfirlýsingu um uppbyggingu á Jaðarsbakka lögð fram í bæjarráði

Eins og áður hefur komið fram á Skagafréttum eru miklar framkvæmdir og breytingar fyrirhugaðar á íþróttasvæðinu við Jaðarsbakka.

Ísold fasteignafélag hefur lýst yfir áhuga á að byggja upp heilsutengda ferðaþjónustu á svæðinu – og hefur Íþróttabandalag Akraness og Knattspyrnufélag Akraness verið með í þeirri hugmyndavinnu. 

Á síðasta fundi bæjarráðs voru drög að viljayfirlýsingu um verkefnið lögð fram. Bæjarstjóra var falið að vinna málið áfram fram að næsta fundi bæjarráðs.  

 

Engar tillögur um útlit á svæðinu eða byggingum hafa verið lagðar fram. Myndin sem fylgir þessari frétt er því byggð á þeim gögnum sem liggja fyrir um hugmyndir um tilfærslu á grasvelli og staðsetningu hótels, baðlóns.

Í hugmyndavinnunni er gert ráð fyrir uppbyggingu hótels, heilsulindar, baðlóns og uppbyggingu íþróttamannvirkja við Jaðarsbakka.

Ísold fasteignafélag hefur ráðið Basalt arkitekta sem hönnunaraðila verkefnisins.

Hugmyndir eru um 80 herbergja 5.000 m2 hótel, 600 m2 baðlón og 650 m2 heilsulind sem tengist Langasandi og Guðlaugu.

Samhliða þessu verkefni þarf að breyta skipulagi og uppbyggingu íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum.

Nánar í þessum fréttum:

Lagt til að færa eitt af kennileitum Akraness í viðamiklum breytingum á Jaðarsbakkasvæðinu

Stefnt að byggingu á hóteli og baðlóni við Jaðarsbakka