Viðamiklar endurbætur fyrirhugaðar á Höfða

Á næstu misserum verður ráðist í ýmsar endurbætur á Dvalarheimilinu Höfða. 

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra lagði til við heilbrigðisráðherra að veita framlag til endurnýjunar á þakklæðningu, veggjaklæðningu ásamt nýjum endurbættum gluggum í 2.áfanga Höfða.  

Auk þess til endurnýjunar á þakkanti og flatra þaka í 1.áfanga Höfða. Heilbrigðisráðherra samþykkti að þetta framlag yrði veitt. 

Með veittu framlagi frá Framkvæmdasjóði aldraðra og framlögum frá eignaraðilum Höfða er búið að tryggja fjármögnun á ofangreindum endurbótum.

Gengið hefur verið frá hönnunarsamningi við GM teiknistofu sf. og Markstofu ehf. um hönnun, gerð útboðslýsingar, gerð útboðsgagna og umsjón um útboði.  Fyrirhugað er að bjóða verkið út í sumarlok.  Áætlaður verktími er frá október 2023 til október 2024. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Höfða.