Syndum – landsátak í sundi hófst í dag

Syndum, landsátak í sundi var ræst með formlegum hætti í dag. Þetta er í þriðja sinn sem verkefnið fer af stað.

Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.

Þeir metrar sem landsmenn synda, á meðan á átakinu stendur, safnast saman og á forsíðu www.syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Í ár er ætlunin að setja kastljós á skólasund grunnskóla og tengja það við Ólympíuleikana í París 2024.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. – 30. nóvember 2023. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Átakið var formlega sett á laggirnar árið 2021 og fer nú fram í þriðja skipti. Í átakinu taka landsmenn sig saman og synda hringi í kringum Ísland en í fyrra náðist að leggja að baki 10.2 hringi í kringum landið.

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Þeir sem eru þátttakendur í verkefninu eiga möguleika á að verða dregnir út og unnið frábæra vinninga. Á heimasíðu verkefnisins syndum.is  má finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.