Gauti Jóhannesson í áhugaverðu viðtali um rannsókn hans á algengum augnsjúkdómi

Skagamaðurinn Gauti Jóhannesson var í áhugaverðu viðtali á Bylgjunni nýverið. Hann rannsakar nýja meðferð við gláku.Gláka einn af algengustu augnsjúkdómunum og getur í verstu tilfellunum valdið blindu. 

Gauti er dósent í augnsjúkdómafræði við Læknadeild Háskóla Íslands en starfar einnig sem dósent við Háskólann í Umeå og yfirlæknir augndeildarinnar við háskólasjúkrahúsið í Umeå. 

Nýverið fékk rannsóknarverkefni hans hefur stóran rannsóknarstyrk frá sænsku vísindastofnuninni Vetenskapsrådet til að rannsaka nýja meðferð við gláku. Styrkurinn er til fjögurra ára og nemur tæpum 270 miljónum íslenskra króna. Veittir voru styrkir til 30 verkefna að þessu sinni og var styrkur Gauta sá hæsti í Svíþjóð.

Hann segir að styrkurinn hafi verið ákaflega kærkominn og muni nýtast vel í komandi rannsóknum.

Gauti er sonur Guðrúnar J. Guðmundsdóttir, augnlæknis á Akranesi og Jóhannesar Guðjónssonar, sem var á sínum tíma í fremstu röð í knattspyrnunni á Akranesi. 

Viðtalið við Gauta er hér fyrir neðan.

 

Reyna að bremsa glákuferlið á nýjan hátt

„Gláka er augnsjúkdómur sem veldur því að sjóntaugin hrörnar og veldur stigvaxandi skaða á sjóntaugarósi og getur að lokum valdið blindu. Öll núverandi meðferð snýst um að lækka augnþrýsting með augndropum, geislameðferð eða skurðlækningum en þrátt fyrir lágan þrýsting heldur mörgum sjúklingum áfram að versna og talsverður fjöldi verður blindur þrátt fyrir meðferð. Þörfin fyrir öðruvísi meðferð er því mikil og við bindum miklar vonir við að nikotinamíðmeðferð geti varið sjóntaugina og hægt á glákuferlinu á annan hátt en augnþrýstingslækkandi meðferð. Það voru því miklar gleðifregnir að heyra að okkur var veittur þessi risastyrkur því það mun gera okkur kleift að framkvæma þessa stóru rannsókn. Vonandi getur hann einnig auðveldað aukið samstarf á milli augndeildanna í Reykjavík og Umeå,“ segir Gauti Jóhannesson.

„Þörfin fyrir öðruvísi meðferð er mikil og við bindum miklar vonir við að nikotinamíð meðferð geti varið sjóntaugina og bremsað glákuferlið á annan hátt en augnþrýstingslækkandi meðferð,“ segir Gauti.

„Þörfin fyrir öðruvísi meðferð er mikil og við bindum miklar vonir við að nikotinamíð meðferð geti varið sjóntaugina og bremsað glákuferlið á annan hátt en augnþrýstingslækkandi meðferð,“ bætir Gauti við.