Björgvin Þór Þórarinsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir keppa í kvöld til úrslita í lokaþætti Idolsins sem sýnt er á Stöð 2.
Björgvin og Jóna eru bæði frá Akranesi og ríkir mikil eftirvænting á Akranesi fyrir kvöldinu.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2024/02/425528297_881923160390327_4350392402097647269_n-940x670.jpg)
Sýnt verður frá keppninni í Bíóhöllinni á Akranesi – og verður án efa mikil steming þar.
Þrír keppendur keppa um sigurinn í kvöld – en ítarleg umfjöllun um keppendur og keppnina er að finna á Visir.is.