Listaverk eftir Bjarna Þór selt á uppboði til stuðnings Miðbæjarsamtökunum Akratorg

Listamaðurinn Bjarni Þór Bjarnason hefur í mörg verið með vinnustofu sína og gallerý í miðbænum á Akranesi. Bjarni Þór er einn af fjölmörgum íbúum á Akranesi sem hefur sýnt stuðning í verki vegna uppbygginar í kringum Akratorgið.

Í dag mun mynd eftir Bjarna Þór vera til sýnis og í framhaldinu seld hæstbjóðanda. Áhugasamir geta gert tilboð í myndina og senda sitt boð á netfangið [email protected] 

Það sem fæst fyrir myndina fara í að greiða kostnað við átakið Fyrsta hjálp – Ráðhús á Akratorg. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Miðbæjarsamtökin og Ásta gallerístjóri verða við Bónus í dag frá 13-15 – sýna myndina og safna undirskriftum til stuðnings átakinu.

Tilgangur samtakanna er að vernda, efla og byggja upp gamla miðbæinn fyrir alla Akurnesinga með öllum tiltækum ráðum.