Veðurlagsspá ECMWF fyrir mánuðina júní til ágúst gefur vísbendingar þess efnis að meðalofthiti á Íslandi verði með hærra móti. Þetta kemur fram í vangaveltum Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. 

Meðfylgjandi spákort sem hér fyrir neðan sýnir líkur á að meðalofthiti (2 m) verði markvert hærri en á viðmiðunartímabilinu 1993-2016. Þ.e. að meðalhinn raðist í efsta þriðjunginn.

Í færslu Einar segir: 

„Við sjáum að yfir landinu kemur fram svæði með 60-70% líkum á slíkum hitagæðum. Sé rýnt í kortið, (sem á reyndar alls ekki að gera), að þá eru líkurnar minni á Vestfjörðum og fyrir norðan land.
En það koma fram áberandi hitafrávik í þessari spá í okkar heimshluta:

1. Gert er ráð fyrir yfir 70% líkum á fremur heitu sumri í Mið- og Suður-Evrópu. Líkurnar reiknast >50% á að meðalhiti þar hafni í efsta fimmtungi.

2. Lofthitinn yfir hafi endurspeglar sjávarhitann. Kalda blettinum djúpt suðvestur af Íslandi er þannig spáð áberandi í sumar. Rétt að fylgjast með honum!

3. Að sama skapi veldur hlýsjór í yfirborði hlýindum djúpt norðausturundan og munu jafnframt hafa áhrif á sumarhitann í N-Noregi ef þetta reynist rétt.

Spá ECMWF um þrýstisvið og meðalloftstrauma í sumar sýnir óverulega frávik og er í raun dálítið á skjön við aprílreikningana í sama líkani fyrir þessa þrjá sumarmánuði.