Arnór leikur með U17 ára landsliði Íslands á æfingamóti í Ungverjalandi

Skagamaðurinn Arnór Valur Ágústsson er þessa dagana að leika með U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu á æfingamóti í Ungverjalandi. 

Mótið ber nafnið Telki Cup og er æfingamót sem stendur yfir frá 14.-20. ágúst. 

Lúðvík Gunnarsson, fyrrum yfirþjálfari hjá KFÍA, er þjálfari liðsins.

Íslenska liðið tapaði 2-1 gegn Króatíu í fyrsta leiknum. 

Ungverjaland og Úsbekistan þátt í mótinu ásamt Íslandi og Króatíu. Ísland mætir Úsbekistan fimmtudaginn 17. ágúst og 19. ágúst mætir Ísland liði  Ungverjalands.

Hópurinn er þannig skipaður:

  • Sölvi Stefánsson – AGF
  • Jón Sölvi Símonarson – Breiðablik
  • Jónatan Guðni Arnarsson – Fjölnir
  • Tómas Johannessen – Grótta
  • Karl Ágúst Karlsson – HK
  • Arnór Valur Ágústsson – ÍA
  • Róbert Elís Hlynsson – ÍR
  • Mikael Breki Þórðarson – KA
  • Jón Arnar Sigurðsson – KR
  • Viktor Orri Guðmundsson – KR
  • Freysteinn Ingi Guðnason – Njarðvík
  • Gunnar Orri Olsen – Stjarnan
  • Tómas Óli Kristjánsson – Stjarnan
  • Thomas Ari Arnarsson – Valur
  • Haraldur Ágúst Brynjarsson – Víkingur R.
  • Jochum Magnússon – Víkingur R.
  • Þorri Heiðar Bergmann – Víkingur R.
  • Jakob Gunnar Sigurðsson – Völsungur
  • Egill Orri Arnarsson – Þór Ak.
  • Pétur Orri Arnarsson – Þór Ak.