Verkfall hjá kennarastétt landsins hefjast að öllum líkindum laugardaginn 1. febrúar að því gefnu að samningar náist ekki fyrir þann tíma.
Verkfallið nær til fjórtan leikskóla og sjö grunnskóla – þar af eru tveir skólar á Akranesi. Ekki hefur verið gefið út hvort kennarar í tónlistar – og framhaldsskólum landsins leggi niður störf.
Fyrirhuguðu verföll leikskólakennara eru ótímabundin. Teigasel á Akranesi er á meðal þeirra leikskóla þar sem að verkfall hefur verið boðað.
Verkfall grunnskólakennara eru tímabundin. Frá 1.-21. febrúar í þremur skólum og 1. febrúar – 26. febrúar í fjórum skólum – og er Grundaskóli á Akranesi einn þeirra þar sem að kennarar leggja niður störf 1.-26. febrúar.
Leikskólarnir sem um ræðir eru:
- Leikskóli Seltjarnarness
- Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ
- Leikskólinn Drafnarsteinn í Reykjavík
- Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki
- Leikskóli Snæfellsbæjar
- Hulduheimar á Akureyri
- Höfðaberg í Mosfellsbæ
- Lundaból í Garðabæ
- Lyngheimar í Reykjavík
- Lyngholt á Reyðarfirði
- Óskaland í Hveragerði
- Rauðhóll í Reykjavík
- Stakkaborg í Reykjavík
- Teigasel á Akranesi
Tímabundin verkföll hafa verið boðið í eftirfarandi grunnskólum:
- Árbæjarskóli í Reykjavík (1.-21. febrúar).
- Garðaskóli í Garðabæ (1.-21. febrúar).
- Heiðarskóli í Reykjanesbæ (1.-21. febrúar).
- Egilsstaðaskóli á Egilsstöðum (1.-26. febrúar).
- Engjaskóli í Reykjavík (1.-26. febrúar).
- Grundaskóli á Akranesi (1.-26. febrúar).
- Lindaskóli í Kópavogi (1.-26. febrúar).