Frá því að Skagafréttir fóru í loftið fyrir tæpum áratug – hefur áhugi frambjóðenda að birta aðsenda pistla í aðdraganda bæjarstjórnarkosninga aldrei verið meiri.

Við tökum á móti hvaða efni sem er. Allt er birt – nema drasl sem meiðir.

Ég sem eigandi og ritstjóri Skagafrétta ehf. er afar þakklátur fyrir þann áhuga sem frambjóðendur sýna með óskum um birtingu á aðsendum greinum. Það er ekkert mál. Og með þeim tólum sem mæla aðsókn og heimsóknir get ég lofað að skagafrettir.is er þar fremst í flokki.

Áhugi þeirra fimm flokka sem bjóða fram í bæjarstjórnarkosningumum 2026 á því að kaupa auglýsingu í eina opna bæjarfréttamiðli Akraness – er hinsvegar í sögulegu lágmarki.

Við því er ekkert að gera.

Takk kæru frambjóðendur fyrir að nenna þessu og gangi ykkur sem allra best.

Auglýsingahólfin á skagafrettir.is taka samt sem áður vel á móti ykkar boðskap.

Og fyrir þá lesendur sem hafa áhuga á að styðja við bakið á eina opna bæjarfréttamiðli Akraness – þá eru allar upplýsingar hér

Sigurður Elvar Þórólfsson – ritstjóri.

[email protected] 

https://www.facebook.com/skagafrettir.is