Skipulags – og umhverfisráð Akraneskaupstaðar leggur til að Árnahús á Sólmundarhöfða verði flutt á nýjan stað – en húsið er staðsett á fyrirhuguðum byggingarreit vegna stækkunar á hjúkrunarheimilinu Höfða. Áætlað er að stækka Höfða töluvert og bæta þar við 60 rýmum á byggingarreit sem er sunnan megin við Höfða.  

Áætlaður flutningur á Árnhúsi verður gerður í samvinnu við minjastofnun – og ef þau áform ganga ekki upp er lagt til að húsið verði rifið ásamt skemmunni sem er staðsett við hliðina á Árnahúsi. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins. 

Þar kemur eftirfarandi fram:

„Fyrir liggur vilji til að stækka hjúkrunarheimilið Höfða um 60 rými til suðurs. Árnahús og skemma standa innan fyrirhugaðs byggingarreits stækkunarinnar. Áður en unnið verður áfram að útfærslu deiliskipulags þarf skipulags- og umhverfisráð að taka afstöðu til framtíðar húsanna, þ.e. hvort stefnt skuli að flutningi þeirra og varðveislu á öðrum stað eða hvort óska eigi heimildar til niðurrifs á húsunum. Við matið þarf meðal annars að taka tillit til varðveislugildis húsanna og ástands Árnahúss. Vegna fyrirhugaðar uppbyggingar hjúkrunarheimilis á Sólmundarhöfða á svæði sem Árnahús er í dag er nauðsynlegt að mannvirkið víki. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að stefnt verði að flutningi Árnahúss á nýjan stað í samráði við Minjastofnun. Ef þau áform ganga ekki eftir verði skoðað með niðurrif á því ásamt skemmunni sem er við hlið þess.“

 

Í janúar 2023 lýsti bæjarráð yfir vilja til þess að Árnahús yrði endurgert – sjá nánar í þessari frétt Skagafrétta. 

Í apríl 2025 tók Bæjarráð Akraness fyrir erindi um málefni Árnahúss. Gísli Gíslason, Rudolf B. Jósefsson, Sigursteinn Sigurðsson, Helena Guttormsdóttir, Karl Jóhann Haagesen og Sæmundur Benediktsson sendu inn erindið. Sjá nánar í þessari frétt á vef Skagafrétta. 

„Endurgera þarf Árnahús eða þau rifinn“

Hér má lesa pistil sem Gísli Gíslason skrifaði um Árnahús á vef Skagafrétta í apríl 2019.

Árnahús var samkvæmt gögnum byggt árið 1901 og því að lögum friðað, en hlaðan og stækkun gamla hússins gerð á árunum 1951 og 1952. Laust fyrir 1900 voru a.m.k. sex býli á Sólmundarhöfða auk leiguliða en á 20. öld fækkaði húsum og ábúendum jafnt og þétt og stendur nú Árnahús eitt eftir af fyrri byggð.

Þar bjó síðast Sigursteinn Árnason, sem fæddist á Sólmundarhöfða árið 1915, en hann bjó þar alla tíð en andaðist á dvalarheimilinu Höfða árið 2011 þá 95 ára gamall.