Skagamaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson var í dag útnefndur sem besti dómarinn í Bestu deild karla í knattspyrnu. 

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, afhenti verðlaunin í dag. Arnar Ingi Ingvarsson var valinn besti dómarinn í Bestu deild kvenna. 

Það eru leikmenn Bestu deildarinnar sem standa að þessu kjöri í samstarfi við KSÍ. 

Þórður Þorsteinn hefur þrívegis verið valinn besti dómarinn í Bestu deild kvenna hjá KSÍ, 2022, 2023 og 2025.

Í ár dæmdi hann aðeins í Bestu deild karla og er þetta í fyrsta sinn sem hann fær þessa viðurkenningu í efstu deild karla.