Skortur er á heitu vatni á Akranesi og eru íbúar beðnir um að fara sparlega með heita vatnið. Jaðarsbakkalaug hefur verið lokað en þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. Í gær sögðum við ykkur frá því að vegna bilana væri afar lág birgðastaða í...
Það var heitt í kolunum í Noregi í gær þar sem Skagamennirnir Jóhannes Harðarson, þjálfari Start, og Arnór Smárason, leikmaður Lilleström, komu við sögu. Jóhannes er þjálfari knattspyrnuliðsins Start frá Kristiansand, en hann tók við liðinu fyrir þremur mánuðum, þegar liðið virtist vera að tapa...
Pétur Ottesen er nýr formaður Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Hann var kjörinn í embættið á aðalfundi Leynis sem fram fór þriðjudaginn 10. desember s.l. Pétur er 15. formaðurinn í rúmlega 50 ára sögu Leynis. Sveinn Hálfdánarson var fyrsti formaður Golfklúbbs Akraness sem síðar varð Golfklúbburinn...
Aðsend grein frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akraness Mikilvægasta hlutverk minnihluta sveitarstjórnar hverju sinni er að veita meirihluta aðhald og reyna af fremsta megni að leiða hann á réttar brautir, sé þess þörf. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akraness taka hlutverk sitt í minnihluta mjög alvarlega...
Töluverð aukning hefur verið á fíkniefnamálum hjá lögregluembættinu á Vesturlandi. Það sem vekur athygli og óhug er hversu langt söluaðilar ganga í því að blanda saman allskonar lyfjum og „skít“ til þess að drýgja efnin. Þetta kemur fram í færslu á fésbókarsíðu lögreglunnar. Um er...
Þriðjudagurinn 10. desember 2019 var næst stærsti dagur í rúmlega þriggja ára sögu fréttavefsins skagafrettir.is. Alls komu 3.895 notendur inn á vefinn og flettingarnar voru 8.006. Alls voru 13 fréttir birtar í gær en lesendur grúskuðu mikið á vefnum í óveðrinu og tæplega 100 fréttir,...
Áhugaljósmyndarinn Tomasz Wisła heldur áfram að gleðja Skagamenn nær og fjær með myndum sínum sem hann birtir með reglulegu millibili. Wisla var á dögunum á göngu um Langasand á Akranesi þegar hann tók þessar myndir þegar sólin var að koma upp í austri í veðurblíðunni...
Skagamaðurinn Kristófer Jónsson náði athygli stærstu fréttamiðla landsins með óvenjulegri nálgun sinni á óveðrið sem nú gengur yfir landið. Á fréttavefnum dv.is var greint frá því í kvöld að sjómaðurinn tók veðrinu fagnandi. Og grillaði á sundfötunum á pallinum. Af myndinni að dæma var boðið...
Frístundamiðstöðin við golfvöllinn á Akranesi fékk í kvöld formlegt nafn. Greint var frá valinu á aðalfundi Golfklúbbsins Leynis sem fram fór í kvöld. Mannvirkið var tekið í notkun í maí á þessu ári, aðeins rúmlega ári eftir að framkvæmdir hófust við bygginguna. Frá því að...
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi var settur á laggirnar sem framhaldsskóli þann 12. september árið 1977. Stofnun Fjölbrautaskólans á Akranesi markaði tímamót í skólamálum á Vesturlandi. Hinn nýi skóli tók við húsnæði og hlutverki Gagnfræðaskólans og Iðnskólans á Akranesi. Fyrsta vetur Fjölbrautaskólans á Akranesi voru þar...