• Eins og áður hefur komið fram á Skagafréttir þá tilkynnti öflugur hópur Skagamanna um nýtt framboð fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2022. Akraneslistinn var kynntur til sögunnar með talsverðum tilþrifum þann 1. apríl 2022. Og með gjörningnum setti Akraneslistinn ný viðmið í aprílgabbi á Akranesi. Hér má sjá tilkynningu frá Akraneslistanum. Við sem stöndum að Akraneslistanum þökkum stuðninginn...

  • Meistaraflokkur ÍA í kvennaflokki mun leika gegn Völsungi frá Húsavík í Lengjubikarkeppni KSÍ laugardaginn, 2. apríl. Leikurinn fer fram í Akraneshöll kl. 14.00 og er hann jafnframt styrktarleikur fyrir Þuríði Örnu Óskarsdóttur, sem er frænka leikmanns í ÍA-liðinu og dóttir Skagamannsins Óskars Arnars Guðbrandssonar. Dagbjört Líf, leikmaður ÍA, og Þuríður Arnar eru systkinabörn, en Hanna...

  • Markaðsherferðin „Það er stutt!” hefur nú verið sett í loftið. Um ræðir herferð sem Akraneskaupstaður stendur fyrir og miðar að því að kynna landsmenn fyrir þeim kostum sem bærinn býr yfir og laða þannig enn fleiri að. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Herferðin hverfist annars vegar um þá staðreynd að á milli höfuðborgarsvæðisins...

  • Gísli Gíslason, fyrrum bæjarstjóri Akraness, er oddviti Akraneslistans sem birti í dag framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2022. Hlédís Sveinsdóttir, verkefnastjóri og fjölmiðlakona skipar annað sætið og Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður er í þriðja sæti listans. Um er að ræða nýtt framboð og mun Akraneslistinn nota listabókstafinn A í næstu kosningum. Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og frjálsir hafa nú...

  • Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að dælubíll fyrir Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar verði keyptur. Öryggistækið mun kosta 92 milljónir kr. sem er 22 milljónum kr. yfir kostnaðaráætlun bæjarins. Ólafur Gíslason & Co var eina fyrirtækið sem lagði inn tilboð í rammaútboði ríkiskaupa sveitarfélaga vegna kaupa á dælubílum fyrir starfsemi slökkviliða. Akraneskaupstaður tók þátt í þessu útboði....

  • Það var mikið um að vera í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í dag þegar Tæknimessa FVA fór fram. Markmið Tæknimessu er að kynna það nám sem er í boði í Fjölbrautaskóla Vesturlands á sviði iðn- og verkgreina og þau tækifæri sem bjóðast til atvinnu hjá iðn- og tæknifyrirtækjum í landshlutanum að loknu námi. Þetta kemur...

  • Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 hafa uppsjávarskip landað tæplega 39 þúsund tonnum í Akraneshöfn. Þar að auki hafa rúmlega 2 þúsund tonn af hrognum farið í gegnum vinnslu á Akranesi. Fyrsta löndunin á þessu ári var 11. janúar þegar Venus NS 15 kom með um 2 þúsund tonn af loðnu á Akranes. Til samanburðar...

  • Akraneskaupstaður mun ekki fara í sérstakt ráðningarátak hvað varðar sumarafleysingar hjá Akraneskaupstað. Þetta kemur fram í fundargerð frá bæjarráði. Á þeim fundi var greinargerð frá mannauðsstjóra vegna mögulegra sumarafleysinga hjá Akraneskaupstað til umfjöllunar. Í fundargerðinni kemur eftirfarandi fram: „Undanfarin tvö ár hefur ríkið verið með sérstakar stuðningsaðgerðir vegna COVID-19 áhrifa á vinnumarkaðinn (atvinnuátak) og greitt...

  • Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að kaupa hús sem stendur við Aggapall við Langasand. Fram kemur í fundargerð ráðsins að stefnt er að áframhaldandi nýtingu mannvirkisins í þágu starfsemi Akraneskaupstaðar og íþróttahreyfingarinnar en húsið er víkjandi á skipulagi vegna hugmynda um frekari uppbyggingu á Langasandsreitnum. Haraldur Sturlaugsson er eigandi hússins sem hefur verið nýtt undir margskonar...

  • Bæjarrráð Akraness hefur samþykkt að greiða 500.000 kr. fyrir þátttöku í þáttunum „Að Vestan“ sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni N4. Þetta kemur fram í fundargerð frá síðasta fundi bæjarráðs. Þættirnir „Að Vestan“ hafa notið mikilla vinsælda – en þættirnir eru hugarfóstur Heiðars Mars Björnssonar og Hlédís Sveinsdóttir hefur verið í stjórnendahlutverki þáttanna á undanförnum misserum....

Loading...