„Virðingafullt uppeldi hefur rutt sér til rúms á Íslandi, sem og á heimsvísu. Þessi aðferð er byggð upp á gagnkvæmu trausti og virðingu. Ég þekki það sjálf að það getur verið orkufrekt og þreytandi að aga börn. Sérstaklega þau sem eru að ganga í gegnum „The terrible twos“. Þetta ferli þarf ekki að vera þannig...
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fer fram um allt land um þessar mundir eins og mörg undanfarin ár en nú í skugga tíðra eldsvoða á heimilum og óvenjumargra banaslysa það sem af er ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu. Þegar þetta er skrifað hafa sex látið lífið í eldsvoðum á árinu, langt umfram...
Alls voru 10 einstaklingar greindir með Covid-19 smit í gær og þar af voru átta í sóttkví. Alls voru tekin 965 sýni í gær og eru nú 667 í sóttkví. Á Vesturlandi eru þrír í einangrun vegna Covid-19 og þar af 2 á Akranesi. Eitt Covid-19 smit greindist því á Akranesi í gær. Alls eru...
Aðventustund Garða og Saurbæjarprestakalls verður að þessu sinni send út á netinu. Prestarnir þrír í Garða – og Saurbæjarprestakalli, Þráinn Haraldsson sóknarprestur, Sr. Jónína Ólafsdóttir og Sr. Þóra Björg Sigurðardóttir munu spjalla um aðventuna, jólin og jólaundirbúningin á Covid tímum. Í þessari Aðventustund er því velt upp hvernig við getum hlúð að okkur sjálfum á...
Guðmundur R. Gíslason tónlistarmaður frá Neskaupstað leggur ýmislegt á sig til þess að aðstoða sóttvarnaryfirvöld í baráttunni gegn Covid-19 smitum. Guðmundur, gerði garðinn frægan með æskusveit sinni Súellen á níunda og tíunda áratug síðustu aldar, en hefur á síðustu árum gefið út ýmis lög. Hann fékk nýverið með sér í lið góðan hóp tónlistarmanna sem...
Útvarp Akraness verður á sínum stað um helgina – en allt frá árinu 1988 hefur þessi viðburður sett stóran svip á jólaundirbúning Skagamanna nær og fjær. Það er Sundfélag Akraness sem stendur á bak við þetta verkefni sem er jafnframt ein stærsta fjáröflun félagsins. Hér getur þú hlustað og horft á streymi frá útvarpinu. Útvarp...
Stjórnendur FVA eru ánægðir með netfundinn sem fram fór fimmtudaginn 19. nóvember s.l. Á fundinum, sem fram fór í gegnum fjarfundarbúnað voru þegar mest var um 70 gestir. Fundarefnið var staða náms og kennslu í covidfaraldri. Fundurinn gekk það vel að nú þegar hefur verið ákveðið að halda slíkan fund á næstu önn til að...
Alls greindust 20 einstaklingar með Covid-19 á Íslandi í gær. Og voru 11 þeirra ekki í sóttkví. Frá 10. nóvember hefur slíkur fjöldi smita ekki verið greindur á landinu. Rétt tæplega 900 sýni voru tekin í gær. Sóttvarnalæknir Íslands varaði við því í gær að faraldurinn væri aftur að ná sér á strik – og...
Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í sjöundu viku tímabilsins. Örn Gunnarsson náði 11 réttum um liðna helgi og þar með féll Jón Örn Arnarson úr leik. Jón Örn á enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina þar sem hann náði að vera samfellt í fjórar vikur í þessari keppni. Örn Gunnarsson og Sigurður...
Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu, undir stjórn Skagamannsins Jóns Þórs Haukssonar, steig stórt skref í átt að því að komast í úrslitakeppni Evrópumótsins á næsta ári. Hallbera Guðný Gísladóttir, fyrrum leikmaður ÍA, var að venju í byrjunarliði Íslands. Ísland lagði Slóvakíu 3-1 á útivelli í gær í spennandi leik. Ísland var 1-0 undir í hálfleik og...