Bjarni Ólafsson AK kom í gær til hafnar í Neskaupstað í gærkvöld með fullfermi af kolmunna eða um 1.870 tonn. Þetta kemur fram í færslu á fésbókarsíðu Síldarvinnslunnar. Skagamaðurinn Runólf Runólfsson skipstjóri Bjarna Ólafssonar segir að aflinn hafi verið stór og fallegur kolmunni. „Við vorum að veiðum á gráa svæðinu suður af Færeyjum alveg við...
Í dag var tíundi glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Þetta skemmtilega verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi. Í dag, fimmtudaginn 10. desember, syngur Jónína Magnúsdóttir eigið lag og texta sem hún samdi einnig. Alls er 24 tónlistaratriði á dagskrá og er...
Velgengni enska knattspyrnufélagsins Tottenham Hotspur er í hæstu hæðum um þessar mundir en ansi langt er síðan liðið hefur trónað á toppnum í ensku knattspyrnunni eins og raunin hefur verið undanfarið. Vegna þessa hafa stuðningsmenn félagsins sprottið fram á ýmsum vettvangi enda oftar en ekki þurft að láta lítið fyrir sér fara á undanförnum árum....
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir, knattspyrnuþjálfari frá Akranesi, hefur í nógu að snúast þessa dagana. Bára Kristbjörg greindi frá því í gær að hún væri á leiðinni til Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún mun þjálfa U-17 og U-19 ára lið félagsins. Bára Kristbjörg er fædd á Akranesi árið 1989. Hún lék með ÍA, Val og ÍBV...
Nýjar reglur um sóttvarnir taka gildi fimmtudaginn 10. desember. Á meðal þess sem er í reglugerðinni er að sundlaugar landsins verða opnaðar aftur – með takmörkunum þó. Á Akranesi verður einhver bið á því að bæjarbúar geti farið í sund. Sundlaugin á Jaðarsbökkum verður lokuð fram á mánudag vegna framkvæmda á búningsklefum sundlaugar. Hefðbundin opnunartími...
Pistill frá starfsfólki Bókasafns Akraness: Einn lykilþáttur að góðri heilsu er að hafa góð félagsleg tengsl við sína nánustu fjölskyldu og vini. Við þurfum að gefa okkur tíma til samverustunda og þær geta verið með ólíkum hætti hjá hverjum og einum. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um gagnsemi þess að lesa fyrir börn,...
Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis á Akranesi fór fram fimmtudaginn 3. desember s.l. Fundurinn fór fram í gegnum fjarfundarbúnað og var þetta í fyrsta sinn sem aðalfundur GL fer fram með slíkum hætti. Starfsárið 2020 var það 55 í röðinni hjá Golfklúbbnum Leyni sem var stofnaður árið 1965. Nýtt met var sett í aðsókn en alls voru...
Skagamaðurinn Arnór Smárason samdi í dag við Íslandsmeistaralið Vals í knattspyrnu. Arnór kemur til Vals frá norska félaginu Lillestöm. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Valsmanna. Arnór gerir tveggja ára samning við félagið en hann er 32 ára og hefur leikið sem atvinnumaður frá árinu 2004. Skagamaðurinn fór á sínum tíma til hollenska félagsins Heerenveen þegar...
Alls voru átta Covid-19 smit greind í gær og voru sjö þeirra í sóttkví. Þetta er annar dagurinn í röð þar sem að átta Covid-19 smit greinast á landinu. Rétt rúmlega 820 sýni voru tekin. Á Vesturlandi er staðan óbreytt hvað varðar einstaklinga í einangrun vegna Covid-19. Alls eru 7 í einangrun vegna Covid-19 smits...
Í dag var níundi glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Það er óhætt að segja að verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi. Í dag, miðvikudaginn 9. desember, syngja vinkonurnar Rakel og María lagið Jólin, jólin allstðar. Lagið er eftir Jón „Bassa“ Sigurðss...