• Nýr og endurhugsaður Kvennahlaupsbolur var afhjúpaður með viðhöfn nýverið.  Bolurinn er tákn nýrra tíma, hugsaður frá grunni og slær tóninn fyrir nýja hugsun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍSÍ. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2020 fer fram 13. júní, 30 árum eftir að fyrsta kvennahlaupið var haldið. Árið 1990 var markmiðið að hvetja konur til hreyfingar...

  • Ninja Sigmundsdóttir tekur þátt í Söngkeppni Samfés fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Arnardals á Akranesi. Keppnin fer fram með óvenjulegum hætti að þessu sinni. Öll atriði keppninnar eru sýnd á vef RÚV og fer kosningin einnig fram á netinu. Ninja syngur lagið I’d Rather Go Blind sem var upprunalega flutt af Ettu James. Flutningur Ninju hefur vakið...

  • Skiptar skoðanir eru um framtíð fasteignar við Suðurgötu 108 í bæjarráði Akraness. Meirihluti bæjarráðs samþykkti á síðasta fundi ráðsins að fasteignin verði sett í söluferli en bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er á móti þeirri ákvörðun. Vísar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nýtt deiliskipulag frá árinu 2017 þar sem að heimild er fyrir því að rífa húsið við Suðurgötu 108....

  • Allir bestu kylfingar landsins eru á meðal keppenda á B59 Hotel mótinu sem hófst föstudaginn 22. maí á Garðavelli á Akranesi en Golfklúbburinn Leynir sér um framkvæmd mótsins. Leiknar verða 54 holur eða þrír keppnishringir á þremur keppnisdögum. Mótið er fyrsta mótið af alls fimm sem eru á stigamótaröð GSÍ tímabilið 2020. Bestu kylfingar landsins...

  • Útiguðsþjónusta fór fram í Garðalundi í dag og heppnaðist helgistundin vel. Þetta kemur fram í frétt á vefnum kirkjan.is Helgistundin fór fram á kirkjulegum degi eldri borgara í hinum einstaklega fallega trjálundi – Garðalundi. Og sólin skein, fólkið kom og boðið var upp á heitt kakó. Hljómur, kór eldri borgara söng. Organisti kirkjunnar, Sveinn Arnar...

  • Eins og áður hefur komið fram eru forráðamenn Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi í þjálfaraleit. Karlalið félagsins leikur í þriðju efstu deild, 2. deild, á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Jón Aðalsteinn Kristjánsson lét af störfum í síðasta mánuði, en hann tók við þjálfun liðsins í byrjun nóvember s.l. Þjálfarastaðan var auglýst nýverið og alls sóttu átta þjálfarar...

  • Verkefnið CharityShirts hefur á undanförnum árum safnað tæplega 2.5 milljónum kr. til góðgerðamála. Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is virkar þetta söfnunarátak með þeim hætti að boðnar eru upp áritaðar keppnistreyjur frá afreksíþróttafólki. Sá sem gefur treyjuna í hvert sinn ákveður hvaða málefni á að styrkja. Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir tekur þátt í...

  • B59 Hotel mótið sem hefst á föstudaginn á Garðavelli á Akranesi verður gríðarlega sterkt og ljóst að allir bestu kylfingar landsins verða á meðal keppenda. Golfklúbburinn Leynir sér um framkvæmd mótsins og er mótið fyrsta stigamót tímabilsins á mótaröð GSÍ. Mótið er án efa sterkasta golfmótið sem fram hefur farið á Akranesi frá því að...

  • Hlutfall þeirra sem nota hjálm hefur aldrei verið hærra en nú, eða 94%, samkvæmt nýlegri könnun sem VÍS framkvæmdi á hjálmanotkun reiðhjólafólks. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VÍS. Könnunin var framkvæmd í níunda skipti samhliða Hjólað í vinnuna. Árið 2012, var hlutfallið 74% og 2013 var hlutfallið orðið 84%. Hlutfallið hefur svo haldið áfram...

  • Íþrótta – og Ólympíusamband Íslands hefur greitt til íþrótta- og ungmennafélaga tæplega 300 milljónir króna af 450 milljón króna framlagi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar vegna áhrifa Covid-19. Íþróttabandalag Akraness og aðildarfélög þess fá um 5,2 milljónir kr. í sinn hlut. Úthlutunin byggir á tillögum vinnuhóps sem ÍSÍ skipaði þann 25. mars sl. til að móta tillögur...

Loading...