Mikil eftirspurn er eftir byggingalóðum á Akranesi. Alls bárust 19 umsóknir um 8 lóðir sem auglýstar voru nýverið. Um er að ræða lóðir í Skógarhverfi og Suðurgötu – nánar í auglýsingunni hér fyrir neðan. Bæjaráð Akraness hefur samþykkt að sérstakur úthlutunarfundur verði fimmtudaginn 26. september – og hefst fundurinn kl. 15:00. Á fundinum verður fulltrúi frá sýslumannsembættinu sem...
Skagamaðurinn Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U17 kvenna í knattspyrnu, hefur valið hóp fyrir fyrstu umferð undankeppni EM 2025.Einn leikmaður úr röðum ÍA, Sunna Rún Sigurðardóttir, er í hópnum. Ísland er þar í riðli með Norður Írlandi, Póllandi og Skotlandi, en leikið er í Skotlandi dagana 1.-7. október.Ísland er í A deild undankeppninnar, en liðið sem endar í...
Karlalið ÍA leikur í efri hluta Bestu deildarinnar í næstu fimm umferðum deildarinnar.ÍA lagði KA í gær á heimavelli, 1-0, í 22. umferð deildarinnar sem var jafnframt síðasti leikur ÍA fyrir skiptingu deildarinnar í efri og neðri hluta. Rúnar Már Sigurjónsson skoraði eina mark ÍA gegn KA í gær en þetta var fyrsta mark Rúnars fyrir...
Lið Kára frá Akranesi sigraði í 3. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu 2024. Káramenn fengu verðlaunagrip eftir lokaleikinn gegn Árbæ s.l. laugardag en sá leikur fór 3-1 fyrir Árbæ. Árangur Káramanna á leiktíðinni var góður en liðið vann 14 leiki, gerði 5 jafntefli og tapaði aðeins 3 leikjum. Lið Kára skoraði langflest mörk í deildinni eða 63 alls...
Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar leggur til að viðamiklar breytingar verði gerðar á Jaðarsbakkasvæðinu – og þar á meðal á hinum sögufræga Akranesvelli – knattspyrnuvelli ÍA. Frá því í janúar árið 2022 hefur verið unnið að hugmyndum um uppbyggingu íþróttamannvirkja og heilsutengdrar ferðaþjónustu við Jaðarsbakka.Hér getur þú kynnt þér tillögu frá Basalt um um framtíðaruppbyggingu á Jaðarsbakka Í...
Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi við Smiðjuvelli 12-22. Breytingin tekur til skipulags lóðanna við Smiðjuvelli 12-22 sem verða sameinaðar í eina lóð – sem verður um 20.000 fermetrar. Á svæðinu verða íbúðarhús og atvinnuhúsnæði á hluta jarðhæðar. Svæðið á milli Smiðjuvalla og Þjóðbrautar verður að mestu leyti blanda af íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Markmiðið er að...
Kvennalið ÍA endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar í knattspyrnu á þessu tímabili. Lokaumferðin fór fram um s.l. helgi en Austfjarðaliðið FHL og Fram úr Reykjavík fara upp í Bestu deildina, efstu deild. ÍA vann 8 leiki, gerði 2 jafntefli og tapaði 8 leikjum. Þetta er besti árangur kvennaliðs ÍA í næst efstu deild frá árinu 2018 þegar liðið...
Fjölskylda Péturs Sigurðssonar afhenti nýverið rúmlega 4 milljónir kr. til Vonar – sem er félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar Landsspítalans í Fossvogi. Pétur lést á Gjörgæslunni í júní á þessu ári – og safnaði fjölskyldan, vinir, samstarfsmenn Péturs, Golfklúbburinn Leynir og aðrir velunnarar í gegnum hlaupahóp Péturs í Reykjavíkurmaraþoninu – ásamt söfnun á meistaramóti Leynis. Upphæðin sem...
Garpur I. Elísabetarson hefur á undanförnum árum verið með áhugaverða þætti á Visir.is, Okkar eigið Ísland.Í þáttunum fer Garpur víðsvegar um Ísland og segir frá áhugaverðum stöðum sem hægt er að nýta til útivistar. Garpur og Skagamaðurinn Guðjón Sigurðsson fara upp á Akrafjall í þessum þætti – og eins og sjá má er útsýnið frábært til...
Útskrift rafiðnaðarmanna eftir sveinspróf fór fram á Hótel Hilton í Reykjavík um s.l. helgi. Alls útskrifuðust 119 einstaklingar með sveinspróf. Alls útskrifuðust 7 nemendur frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi við þetta tilefni – 6 í rafvirkjun og 1 rafeindavirki.Þetta kemur fram í tilkynningu sem Trausti Gylfason kennari við FVA skrifaði. Föngulegur hópur nýútskrifaðra rafvirkja frá FVA....