Kvennalið ÍA landaði sínum fyrsta sigri í B-deild Lengjubikarkeppni KSÍ með 4-1 sigri gegn HK/Víkingi. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni.
Gestirnir komust yfir í fyrri hálfleik en Ylfa Laxdal Unnarsdóttir jafnaði metin fyrir ÍA á 53. mínútu.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2018/05/ÍA-Keflavík-konur-2018-91-1132x670.jpg)
Þá var komið að Ólöfu Sigríði Kristinsdóttur sem skoraði þrennu á síðustu 20 mínútum leiksins.
Þetta var fyrsti sigur ÍA í Lengjubikarkeppninni.
Auglýsing
Auglýsing