Áhugi fyrir því að hækka „Hótel Akranes“ og byggja íbúðir



Margir Skagamenn eiga góðar minningar frá árunum þegar Hótel Akraness var miðpunktur skemmtanalífsins í bænum.

Hótel Akranes sem var að finna við Bárugötu 15 hefur staðið autt í nokkur ár.

Engin starfsemi hefur verið í húsinu um langan tíma.

Á síðastliðnu ári hafa ýmsar endurbætur verið gerðar á húsinu og nú hafa eigendurnir áhuga á því að hækka húsið.

Fyrirspurn þess efnis var lögð fyrir á fundi skipulags – og umhverfisráðs Akraness.

Þar kemur fram að eigendurnir hafi hug á því að koma fyrir 12 smáíbúðum með því að byggja ofaná „gamla Hótel Akraness.“

Skipulags- og umhverfisráð leggst ekki gegn því að byggðar verði íbúðir á Bárugötu 15 að því tilskyldu að breyting á skipulagi gangi eftir.
Hinsvegar leggst ráðið gegn því að bílastæði verði sett upp við Bárugötu 14 og 16.

Umsækjandi þarf því með umsókn sinni að sína fram á hvernig hann hyggst leysa bílastæðamál er tengjast íbúðum á Bárugötu 15.

 

 

 

Auglýsing



Auglýsing