Nemendur úr 10. bekk Grundaskóla komu, sáu og sigruðu í gær þegar söngleikurinn Hunangsflugur og Villikettir var frumsýndur fyrir troðfullum sal í Grundaskóla.
Áhorfendur skemmtu sér konunglega og hylltu leikara og alla þá sem að verkefninu koma í lok sýningar.
Það hefur margt gengið á í undirbúningin hópsins á undanförnum vikum og mánuðum – þar sem að ýmsar hindranir hafa staðið í vegi þeirra. Má þar nefna eitt stykki heimsfaraldur, og mikil veikindi vegna inflúensu á síðustu vikum.
Í gær, nokkrum klukkutímum fyrir frumsýninguna, kom enn eitt verkefnið upp sem þurfti að leysa.
Benedikt Ísar Björgvinsson – sem leikur eitt af aðalhlutverkunum í söngleiknum, er einnig leikmaður í 2. flokki ÍA í knattspyrnu.
Hann tók þátt í leik með ÍA á Íslandsmótinu kvöldið fyrir frumsýninguna.
Benedikt meiddist illa á ökkla í leiknum og í gær, rétt fyrir frumsýninguna, kom í ljós að um ökklabrot væri að ræða.
Benedikt lét það ekki stöðva sig, hann mætti á sviðið í gær, með gifs á hægra fæti, og hækjur sér til stuðnings.
Í stuttu máli þá leysti Benedikt hlutverk sitt með glæsibrag. Og á síðustu stundu þurfti að breyta fjölmörgum atriðum söngleiksins til þess að Benedikt gæti tekið þátt.
Myndasafn frá sýningunni @skagafrettir.is