Eyjólfur tekur við sem framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA

Eyjólfur Vilberg Gunnarsson er nýr framkvæmdastjóri Knattspyrnufélag ÍA, KFÍA. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu – en á þriðja tug umsókna bárust um starfið.

Eyjólfur hefur víðtæka reynslu á sviði stjórnunar, fjármála, reksturs og félagsmála en hann hefur komið að knattspyrnuþjálfun yngri flokka og hefur verið að sækja réttindi sem þjálfari.

Hann starfaði sem sparisjóðsstjóri Suður- Þingeyinga fram undir síðari hluta síðasta árs. Eyjólfur þekkir vel til Vesturlands þar sem hann bjó á Hvanneyri og starfaði bæði sem svæðis- og útibússtjóri og forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá Arion banka í Borgarnesi á árunum 2009 – 2019. Hann og hefur einnig verið í eigin rekstri hjá félagi sínu Krosshús ehf, við ráðgjöf til fyrirtækja um fjármál og fjárfestingar, ásamt sölu og ráðgjöf vegna fasteignaviðskipta.

Eyjólfur er með M.Sc. gráðu í fjárfestingarstjórnun frá Háskólanum í Reykjavík (2009) auk menntunar í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands (2002). Hann hefur auk þess lokið námi til löggildingar fasteigna- og skipasala, skipstjórnarprófi og réttinda vélavarðar smábáta til viðbótar við réttindi til knattspyrnuþjálfunar.

Eyjólfur tekur við starfinu af Geir Þorsteinssyni, sem nýverið tók við sem framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Leiknis í Breiðholti.

Í tilkynningunni er þakkar KFÍA Geir Þorsteinssyni fyrir hans góða starf fyrir félagið og óskar honum alls hins besta á nýjum vettvangi.