Fjórir Skagamenn í A-landsliðshóp KSÍ sem leikur tvo leiki í mars í undankeppni EM2024

Fjórir leikmenn sem hófu knattspyrnuferil sinn með ÍA hafa verið valdir í karlalandslið Íslands sem keppir í undankeppni EM 2024. 

Mótherjar Íslands eru Bosnía-Hersegóvína og Liechtenstein en leikirnir fara fram 23. og 26. mars. Önnur lið í riðlinum eru Lúxemborg, Slóvakía og Portúgal.

Báðir leikirnir fara fram á útivelli – sá fyrri þann 23. mars í Bosníu-Hersegóvínu og sá síðari þann 26. mars í Liechtenstein.

Arnar Þór Viðarsson er þjálfari A-landsliðs karla og Skagamaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er aðstoðarþjálfari liðsins. 

Ísak Bergmann Jóhannesson (FCK), Hákon Arnar Haraldsson (FCK), Arnór Sigurðsson (Norrköping) og Stefán Teitur Þórðarson (Silkeborg) eru í hópnum en þeir léku allir með ÍA áður en þeir fóru í atvinnumennsku. 

Hópurinn

  • Patrik Sigurður Gunnarsson – Viking FK – 3 leikir.
  • Rúnar Alex Rúnarsson – Alanyaspor – 20 leikir.
  • Elías Rafn Ólafsson – FC Midtjylland – 4 leikir.
  • Daníel Leó Grétarsson – Slask Wroclaw – 12 leikir.
  • Aron Einar Gunnarsson – Al Arabi – 100 leikir, 2 mörk.
  • Sverrir Ingi Ingason – PAOK – 40 leikir, 3 mörk.
  • Aron Elís Þrándarson – OB Odense – 17 leikir, 1 mark.
  • Hörður Björgvin Magnússon – Panathinaikos – 44 leikir, 2 mörk.
  • Davíð Kristján Ólafsson – Kalmar FF – 13 leikir.
  • Guðlaugur Victor Pálsson – D.C. United – 32 leikir, 1 mark.
  • Alfons Sampsted – FC Twente – 14 leikir.
  • Mikael Neville Anderson – AGF – 18 leikir, 2 mörk.
  • Ísak Bergmann Jóhannesson – FC Copenhagen – 17 leikir, 3 mörk.
  • Hákon Arnar Haraldsson – FC Copenhagen – 7 leikir.
  • Þórir Jóhann Helgason – US Lecce – 16 leikir, 2 mörk.
  • Arnór Ingvi Traustason – IFK Norrköping – 45 leikir, 5 mörk.
  • Stefán Teitur Þórðarson – Silkeborg IF – 15 leikir, 1 mark.
  • Arnór Sigurðsson – IFK Norrköping – 25 leikir, 2 mörk.
  • Jón Dagur Þorsteinsson – OH Leuven – 24 leikir, 4 mörk.
  • Mikael Egill Ellertsson – Venezia FC – 10 leikir.
  • Jóhann Berg Guðmundsson – Burnley FC – 82 leikir, 8 mörk.
  • Alfreð Finnbogason – Lyngby BK – 63 leikir, 15 mörk.
  • Andri Lucas Guðjohnsen – IFK Norrköping – 13 leikir, 3 mörk.
  • Sævar Atli Magnússon – Lyngby BK – 2 leikir

    Leikmenn til vara:

  • Hjörtur Hermannsson – AC Pisa – 25 leikir, 1 mark.
  • Guðmundur Þórarinsson – OFI – 12 leikir.
  • Dagur Dan Þórhallsson – Orlando City – 4 leikir.
  • Nökkvi Þeyr Þórisson – Beerschot – 1 leikur.
  • Sveinn Aron Guðjohnsen – Eflsborg – 19 leikir, 2 mörk