Niðurstöður rannsóknar á jarð og grunnvatnsstöðu á Neðri-Skaga liggja fyrir

Á undanförnum vikum hefur Verkís staðið að rannsókn á jarð – og grunnvatnsaðstæðum á Neðri- Skaga á Akranesi. Skýrsla um ástandið var kynnt á fundi skipulags – og umhverfisráðs nýverið.

Fyrstu niðurstöður benda til þess að með tilliti til þeirra gagna sem aflað hefur verið í sumar, rannsókna sem gerðar hafa verið á jarðlögum og grunnvatni á Akranesi, ásamt yfirferð á öðrum gögnum frá veðurfari og mælingum Veitna, telst há grunnvatnsstaða í sumar vera vegna mikillar úrkomu fyrri hluta árs. Síðast mældist meiri úrkoma á þessu tímabili árið 2017 og þar á undan árið 2012.

Starfsmenn Verkís mæla með áframhaldandi vöktun á grunnvatni með síritum og efnagreiningu vatns til að afla nánari upplýsinga og mögulegan uppruna vatnsins og grunnvatnsrennsli á svæðinu. Einnig er mælt með að kanna betur mögulegar ástæður hás grunnvatnsborðs norðvestan við Vesturgötu, við Krókalón.

Skýrslan er í heild sinni hér: