Lið frá FEBAN með gull – og silfurverðlaun á Vesturlandsmótinu í Boccia

Félag eldri borgara á Akranesi, FEBAN, lét mikið að sér kveða á Vesturlandsmótinu í Boccia sem fram fór á Hvammstanga nýverið. 

Alls mættu 12 lið til keppni, og var FEBAN með alls fimm lið, þrjú karlalið og tvö kvennalið. 

FEBAN landaði gull – og silfurverðlaunum á mótinu. 

Eiríkur Hervarsson, Hilmar Björnsson og Böðvar Jóhannesson stóðu uppi sem Vesturlandsmeistarar og fengu gullverðlaun og bikar. 

Rögnvaldur Einarsson, Gunnlaugur Ingimundarson og Þorgils Sigurþórsson fengu silfurverðlaun. 

Skagamaðurinn Þorbergur Þórðarson var í liðinu sem fékk bronsverðlaun en með honum í liði voru Þórhallur og Þóra. 

Kvennalið FEBAN fékk góða reynslu úr þessari keppni – en flestir liðsmenn kvennaliðsins voru að spreyta sig í fyrsta sinn í alvörukeppni.  

 

Böðvar Jóhannesson, Hilmar Björnsson og Eiríkur Hervarsson stóðu uppi sem Vesturlandsmeistarar og fengu gullverðlaun og bikar.
Rögnvaldur Einarsson, Gunnlaugur Ingimundarson og Þorgils Sigurþórsson fengu silfurverðlaun.