Löður hefur enn hug á að opna bílaþvottastöð við Innesveg 

Löður ehf. hefur sótt á ný um breytingar á Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 og deiliskipulagi Flatahverfis klasi 5 og klasi 6 vegna Innnesvegar 1.

Í lok febrúar á þessu ári var umsókn fyrirtækisins kynnt með ítarlegum hætti –  þar sem að fyrirhugað er að setja upp bílaþvottastöð, bílaverkstæði og verslun í núverandi húsnæði við Innesveg 1.

Um er að ræða húsnæði þar sem að bílaumboðið Askja er með í dag – og verkstæði sem staðsett er við hliðina á Kallabakarí. Askja opnaði í lok mars á þessu ári sölu- og þjónustuumboð á Innnesvegi 1 Akranesi. 

Í fundargerð Skipulags- og umhverfisráð Akraness frá því í júní á þessu ári lýsti ráðið yfir áhyggjum sínum yfir starfsemi að næturlagi og bað um endurskoðun á opnunartíma. Einnig var óskað eftir ítarlegri gögnum um ytri áhrif frá starfseminni er varðar hljóðvist, lykt og ljósmengun. Ný gögn vegna málsins hafa verið lögð fram.

Skipulags- og umhverfisráð hefur skipulagsfulltrúa að halda kynningarfund um væntanlega deiliskipulagsbreytingu

Löður hafði áður sótt um að setja upp sjálfvirka bílaþvottastöð við bensínafgreiðslu Orkunnar við Skagabraut 43. Ekkert verður að byggingu á húsi undir bílaþvottastöð við Skagabrautina.

Bílaþvottastöðin Löður var stofnuð árið 2000. Skel er eigandi Löðurs en fyrirtækið er með 15 bílaþvottastöðvar á landinu öllu.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu frá því í febrúar á þessu ári  kemur fram að minniháttar breytingar verði gerðar á á núverandi útlit húss vegna breyttrar notkunar. Annað er óbreytt.

Ítarleg skýrsla hefur verið gerð um ljósmengun og hljóðvist.

Í skýrslunni um ljósmengunn er lagt er til að reist verði tæplega tveggja metra há girðing á lóðamörkum sem grípi mögulega truflandi ljósgeisla í íbúðum við Hagaflöt 11. 

Skipulagslýsing sjá hér

Hljóðvist skýrsla sjá hér

 Ljósmengun skýrsla sjá hér