Aðsend grein:
Fyrir um tveimur árum skrifaði ég stutta grein og gerði í henni meðal annars athugasemdir við herferð félagasamtaka hér í bæ sem beindust að því að fylla gamla Landsbankahúsið við Akratorg af embættismönnum bæjarins frá 8-16 á virkum dögum. Yrði það ekki gert væri framtíð miðbæjarins enginn. Greinilegt var að hrifning félagasamtakanna var ekki mikil á undirrituðum og skrifaði stjórnarmaður í félagasamtökunum grein undir fyrirsögninni „Skammir frá Einari“

Nú hefur það gerst að tveimur árum síðar að Bæjarstjórn hefur samþykkt sölu á gamla Landsbankahúsinu og er kaupandinn félag sem ætlar að starfrækja hótel, veitingastað og veislusal í húsnæðinu. Verður því með þessum áformum líf í húsinu allan sólahringinn og er það von Bæjarstjórnar að þetta verði upphafið af lifandi og aðlaðandi miðbæ sem eykur lífsgæði bæjarbúa og ýti undir gott mannlíf. Þolinmæðin við hjartahnoðið er vonandi að skila sér.
Við þessi tíðindi hefði maður haldið að fyrrnefnd félagasamtök sem fóru mikinn fyrir tveimur árum sendu frá sér yfirlýsingu þar sem þessari lífsbjörgun væri fagnað. Hún kemur kannski en hugsanlega er hræðsla við hávaða frá væntanlegu lífi í miðbænum eitthvað að hamla fagnaðarlátum stjórnarmanna.
Ég sjálfur fagna þessum áfanga, kominn tími að gamla Landsbankahúsið fyllist af iðandi mannlífi sem mun svo vonandi smitast út frá sér út í miðbæinn og allt samfélagið okkar.
Einar Brandsson.
Höfundur er íbúi og bráðum fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akranesi.







