Fjórir leikmenn sem hófu knattspyrnuferil sinn með ÍA hafa verið valdir í karlalandslið Íslands sem keppir í undankeppni EM 2024.
Mótherjar Íslands eru Bosnía-Hersegóvína og Liechtenstein en leikirnir fara fram 23. og 26. mars. Önnur lið í riðlinum eru Lúxemborg, Slóvakía og Portúgal.
Báðir leikirnir fara fram á útivelli – sá fyrri þann 23. mars í Bosníu-Hersegóvínu og sá síðari þann 26. mars í Liechtenstein.
Arnar Þór Viðarsson er þjálfari A-landsliðs karla og Skagamaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er aðstoðarþjálfari liðsins.
Ísak Bergmann Jóhannesson (FCK), Hákon Arnar Haraldsson (FCK), Arnór Sigurðsson (Norrköping) og Stefán Teitur Þórðarson (Silkeborg) eru í hópnum en þeir léku allir með ÍA áður en þeir fóru í atvinnumennsku.
Hópurinn
- Patrik Sigurður Gunnarsson – Viking FK – 3 leikir.
- Rúnar Alex Rúnarsson – Alanyaspor – 20 leikir.
- Elías Rafn Ólafsson – FC Midtjylland – 4 leikir.
- Daníel Leó Grétarsson – Slask Wroclaw – 12 leikir.
- Aron Einar Gunnarsson – Al Arabi – 100 leikir, 2 mörk.
- Sverrir Ingi Ingason – PAOK – 40 leikir, 3 mörk.
- Aron Elís Þrándarson – OB Odense – 17 leikir, 1 mark.
- Hörður Björgvin Magnússon – Panathinaikos – 44 leikir, 2 mörk.
- Davíð Kristján Ólafsson – Kalmar FF – 13 leikir.
- Guðlaugur Victor Pálsson – D.C. United – 32 leikir, 1 mark.
- Alfons Sampsted – FC Twente – 14 leikir.
- Mikael Neville Anderson – AGF – 18 leikir, 2 mörk.
- Ísak Bergmann Jóhannesson – FC Copenhagen – 17 leikir, 3 mörk.
- Hákon Arnar Haraldsson – FC Copenhagen – 7 leikir.
- Þórir Jóhann Helgason – US Lecce – 16 leikir, 2 mörk.
- Arnór Ingvi Traustason – IFK Norrköping – 45 leikir, 5 mörk.
- Stefán Teitur Þórðarson – Silkeborg IF – 15 leikir, 1 mark.
- Arnór Sigurðsson – IFK Norrköping – 25 leikir, 2 mörk.
- Jón Dagur Þorsteinsson – OH Leuven – 24 leikir, 4 mörk.
- Mikael Egill Ellertsson – Venezia FC – 10 leikir.
- Jóhann Berg Guðmundsson – Burnley FC – 82 leikir, 8 mörk.
- Alfreð Finnbogason – Lyngby BK – 63 leikir, 15 mörk.
- Andri Lucas Guðjohnsen – IFK Norrköping – 13 leikir, 3 mörk.
- Sævar Atli Magnússon – Lyngby BK – 2 leikir
Leikmenn til vara:
- Hjörtur Hermannsson – AC Pisa – 25 leikir, 1 mark.
- Guðmundur Þórarinsson – OFI – 12 leikir.
- Dagur Dan Þórhallsson – Orlando City – 4 leikir.
- Nökkvi Þeyr Þórisson – Beerschot – 1 leikur.
- Sveinn Aron Guðjohnsen – Eflsborg – 19 leikir, 2 mörk