Tveir leikmenn úr röðum ÍA eru í hópi 26 leikmanna sem valdir hafa verið í úrtakshóp fyrir U-17 ára landslið Íslands í knattspyrnu. Hópurinn mun æfa dagana 1.-3. febrúar en þjálfari liðsins er Davíð Snorri Jónasson. Skagamennirnir í hópnum eru þeir Jóhannes Breki Harðarson og...
Þorsteinn Halldórsson er nýr þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu. Hann var áður þjálfari kvennaliðs Breiðabliks – og hefur hann nú þegar hafið störf. Aðstoðarmaður Þorsteins verður Ásmundur Haraldsson, þjálfari Kára á Akranesi, en Ási Haralds þekkir vel til A-landsliðs kvenna en hann var aðstoðarþjálfari liðsins...
Alls greindust fjögur Covid-19 smit á landinu í gær og voru allir einstaklingarnir í sóttkví. Alls hafa nú greinst 6.000 Covid-19 smit frá upphafi á Íslandi. Rétt rúmlega 1000 sýni voru tekin á landinu í gær – sem er sambærilegur fjöldi og undanfarna daga. Á...
Veglegt happdrætti var á Þorrablóti Skagamanna 2021 þar sem að fjöldi vinningar fór á góða staði víðsvegar um Akranes. Þorrablótsnefndin afhenti glæsilega vinninga um s.l. helgi og eins og sja má á þessum myndum voru vinningshafarnir afar ánægðir með heimsóknina. Hér fyrir neðan eru vinningshafar...
Akraneskaupstaður hefur ráðið Karl Jóhann Haagensen byggingafræðing, tímabundið í stöðu byggingafulltrúa. Hann hefur gegnt stöðu verkefnastjóra á skipulags- og umhverfissviði hjá Akraneskaupstað. Karl mun formlega taka við starfinu 1. febrúar n.k. en þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Staðan var auglýst í nóvember s.l....
Halla Marta Árnadóttir var nýverið ráðin í stöðu skipulagsfulltrúa hjá Akraneskaupstað. Staðan var auglýst í nóvember s.l. og tekur Halla Marta við stöðunni í byrjun febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Halla Marta lauk BA námi í arkitektúr frá Machintosh school of Architecture...
Tveir einstaklingar greindust með Covid-19 smit á landinu í gær og voru þeir báðir í sóttkví. Staðan á landsvísu er þannig að færri eru í sóttkví en eru í einangrun vegna Covid-19. Alls voru tæplega 1.500 sýni tekin á landinu í gær sem er með...
„Þetta kvöld fór fram úr okkar björtustu vonum og við höfum fengið mjög góð viðbrögð frá þeim sem fylgdust með streyminu í útsendingunni. Við renndum blint í sjóinn með þetta allt saman – enda hefur þetta aldrei verið gert áður. Sem betur fer tókst þetta...
„Kærar þakkir til SSV fyrir styrkinn, svona styrkir skipta gríðarlegu máli fyrir menningarlífið,“ skrifar tónlistarkonan Valgerður Jónsdóttir á fésbókarsíðu sína. Uppbyggingarsjóður Vesturlands – sem Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi standa að veitti verkefni Valgerðar, „Tónar og ljóð“ styrk nýverið sem hún ætlar að nýta sumarið 2021....
Einn einstaklingur var greindur með Covid-19 smit innanlands í gær og var sá einstaklingur í sóttkkví. Alls voru tekin 515 sýni innanlands í gær og 432 við landamærin – og greindist ekkert smit hjá farþegum sem komu til landsins í gær. Á landinu öllu eru...