Skagafréttir tóku þátt í því að skrá söguna á Akranesi þegar Sementsstrompurinn var felldur þann 22. mars 2019. Góður hópur Skagamanna kom að því að safna efni í þetta myndband sem Kristinn Gauti Gunnarsson setti saman. Þeir sem komu að þessu verkefni fyrir skagafrettir.is voru...
Það er lítið um að vera í íþróttalífinu um þessar mundir en það er nóg til af gömlu efni á veraldarvefnum til þess að stytta sér stundir við. Hér er brot úr körfuboltaleik þar sem að ÍA og Skallagrímur eigast við i Borgarnesi árið 1984....
Skipulags- og umhverfisráð leggur til að samið verði við Landslag ehf. um hönnun lóða við Brekkubæjar – og Grundaskóla. Tvö tilboð frá landslagsarkitektarstofum bárust í verkefnið en kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar nam 10 milljónum kr. Landslag ehf bauð 10.752.000 kr. í verkefnið en Landsmótun ehf bauð 14.784.000...
Geir Þorsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA (KFÍA) og tekur hann við starfinu af Sigurði Þór Sigursteinssyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem er hér fyrir neðan. Geir hefur áratuga reynslu á sviði stjórnunar, fjármála, reksturs og félagsmála en hann starfaði áður...
Það er alltaf stuð á Rakarastofu Gísla eins og sjá má í þessu myndbandi sem eigandinn setti sjálfur fram á fésbókarsíðu sína í dag. Það hefur oft verið meira að gera á rakarastofunni eins og gefur að skilja en það þýðir ekkert að tapa gleðinni....
ÍSÍ og UMFÍ tilkynntu í dag að allt skipulagt íþróttastarf hér á landi verði lagt niður vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Óljóst er hve lengi bannið standa yfir. Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, hefur sent frá sér leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar...
Íslandsmótið í knattspyrnu hefst ekki á þeim tíma sem Knattspyrnusamban Íslands hafði áætlað. Á fundi stjórnar KSÍ var ákveðið að fresta upphafi Íslandsmótsins sem mun ekki hefjast fyrr en um miðjan maí í fyrsta lagi. Keppni í Lengjubikarnum hefur verið aflýst og verður enginn sigurvegari...
Hátt þjónustustig í versluninni Einar Ólafsson kemur mörgum til bjargar á þessum undarlegu tímum. Í tilkynningu frá „Einarsbúð“ eru Skagamenn nær og fjær minntir á heimsendingaþjónustuna sem hefur verið eitt af einkennismerkjum verslunarinnar í marga áratugi. Það er einfalt að panta eins og fram kemur...
Skagamaðurinn Eiríkur Jónsson var skipstjóri í síðasta túr á Akurey AK sem kom með fullfermi til hafnar í Reykjavík. Allir þrír ísfisktogarar Brims komu til löndunar með fullfermi í síðustu viku eða sem nemur 600 tonnum. Þetta kemur fram á vef Brims. ,,Það hefur verið...
Skagamaðurinn, Ísak Bergmann Jóhannesson, er efstur á lista yfir efnilegustu leikmenn sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Frá þessu er greint á fréttavef Aftonbladet en fotbolti.net greindi fyrst frá hér á landi. Ísak Bergmann er fæddur árið 2003 og er hann atvinnumaður hjá IFK Norrköping. Í valinu...