Það ríkti einlæg gleði þegar 12 sjúkrarúm af gerðinni Eleganza voru afhent með formlegum hætti í Heilbrigðisstofnun Vesturlands í dag. „Ég vil fyrir hönd stofnunarinnar þakka stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands fyrir þetta frábæra framtak,“ sagði Jóhanna Fjóla Jóhannsdóttir forstjóri HVE þegar Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands...
Það var mikið markaregn í Eistlandi í dag þegar lið ÍA/Kára/Skallagríms gjörsigraði lið Levadia Tallinn í Unglingadeild UEFA. Lokatölur 12-1 og samanlagt 16-1 í báðum leikjunum en fyrri leikurinn fór 4-0 fyrir ÍA/Kára/Skallagrím á Akranesvelli. Staðan var 6-0 í hálfleik og leikmenn 2. flokks ÍA/Kára/Skallagríms...
Í byrjun skólaárs var tekin sú ákvörðun að banna alfarið notkun snjallsíma á skólatíma í Grundaskóla á Akranesi. Um tímabundið bann var að ræða en nú hefur verið tekin sú ákvörðun að bannið verði í gildi þar til annað verður ákveðið. Þetta kemur fram í...
Formlegur fundur með hugsanlegum fjárfestum um uppbyggingu gagnavers á Akranesi fór fram þann 25. september s.l. Þetta kom fram í máli Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar í gær. Fundurinn fór fram í Frístundamiðstöðinni við golfvöllinn á Akranesi. Alls voru 7 einstaklingar á fundinum...
Sameiginlegt lið ÍA/Kára og Skallagríms leikur í dag síðari leikinn gegn Levadia Tallinn í Unglingadeild UEFA. Leikurinn fer fram í Eistlandi og hefst hann kl. 14:30 að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á fésbókar og Twittersíðu ÍATV – sjá hér fyrir neðan ÍA...
Nemendur í Grundaskóla stóðu sig svipað og undanfarin ár í samræmdu prófunum í 4. og 7. bekk. Það sem stendur upp úr er að árangur nemenda í Grundaskóla er betri í stærðfræði en á landsvísu. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Grundaskóla. Í íslensku...
Í drögum að samgönguáætlun sem er til umfjöllunar á Alþingi Íslands kemur fram að gert er ráð fyrir 400 milljónum kr. í verkefni sem tengjast Faxabraut á Akranesi. Þetta kom fram í ávarpi Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra í gær í upphafi bæjarstjórnarfundar. Eins og áður...
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir hefur óskað eftir áframhaldandi tímabundnu leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi, eða til 1. september 2020. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar Akraness í dag. Tillaga þess efnis að verða við ósk Gerðar var samþykkt með 7 atkvæðum en 2 bæjarfulltrúar sátu hjá....
Bæjarstjórn Akraness fjallaði um málefni FVA á fundi sínum í dag. Eins og fram hefur komið hafa kennarar í Fjölbrautaskóla Vesturlands lýst yfir vantrausti á skólameistara FVA, Ágústu Elínu Ingþórsdóttur. Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) hafa hvatt yfirvöld menntamála til að...
Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir hafa á undanförnum árum byggt upp hrossræktarbúið Skipaskaga við sveitabæinn Litlu-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit. Skipaskagi er í fremstu röð á sviði hrossaræktar og er búið tilnefnt til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, sem ræktunarbú ársins 2019. Alls komu 30 slík hrossaræktarbú til...