Það er óhætt að segja að bæjarfréttamiðillinn skagafrettir.is hafi fengið viðamikið „tæknilegt“ vandamál í fangið í lok ársins 2022. Yfirfærsla á gögnum á milli hýsingaraðila varð til þess að tæknilegar hindranir komu upp. Aðgengi lesenda að vefnum var skert í nokkra daga og framsetning frétta hefur verið með öðrum hætti en áður – vegna tæknilegra orsaka. Góðu fréttirnar...
Kristín Þórhallsdóttir, var í kvöld kjörin Íþróttamaður Akraness fyrir árið 2022. Þetta er þriðja árið í röð sem kraftlyftingakonan er efst í þessu kjöri en hún keppir fyrir Kraftlyfingafélag Akraness. Sundmaður ársins, Einar Margeir Ágústsson var annar í kjörinu og kylfingur ársins, Björn Viktor Viktorsson, varð þriðji. Kjörinu var lýst á vef ÍATV í kvöld. Þetta er...
Þrettándabrennan fer fram í dag, föstudaginn 6. janúar, við Þyrlupallinn á Jaðarsbökkum. Blysför hefst kl 17:00 við Þorpið, Þjóðbraut 13.Björgunarfélag Akraness sér um brennuna og flugeldasýningu sem hefst um kl 17:30. Hægt er að fylgjast með sýningunni meðfram strandlengjunni alveg frá Breið og inn að Höfða og víðar um bæinn.Kjör Íþróttamanns Akraness verður áfram með breyttu sniði...
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum í lok ársins 2022 drög að samþykkt um hænsnahald á Akranesi. Í drögunum sem voru samþykkt kemur m.a. fram að leyfishafar geti verið með allt að sex hænur á lóðinni en hanar eru ekki leyfilegir. Almenn lausaganga hænsna er bönnuð er þar sem þannig háttar til og ekki er hætta...
Akraneskaupstaður er að undirbúa að setja upp grenndarstöðvar á þremur stöðum á Akranesi. Hafist verður handa við uppsetningu þann 20. janúar 2023. Á hverri grenndargámastöð verða gámar fyrir málma, gler, pappi/pappír og plast. Einnig verður möguleiki á að bæta við ílátum fyrir fleiri flokka svo sem textíl, flöskur/dósir, kertavax, rafhlöður og fleira. Þetta kemur fram í tilkynningu frá...
Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2023 og þriggja ára áætlun 2024 til 2026 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness um miðjan desember s.l. Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness segir að fjárhagsstaða Akraneskaupstaðar sé mjög góð og afar mikilvæg undirstaða fyrir mikla sókn í uppbyggingu bæjarfélagsins. Nánar...
Íbúar á Akranesi geta tekið þátt í kosningunni á Íþróttamanni Akraness fyrir árið 2022. Opnað hefur verið fyrir kosningu í þjónustugátt Akraneskaupstaðar og er kosningin opin frá 28. desember til og með 4. janúar. Þátttakendur þurfa að auðkenna sig í innskráningu með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Kosningin nær einungis til svæðis undir póstnúmeri 300 og getur hver...
Þrír leikmenn úr röðum ÍA hafa verið valdir til að taka þátt á úrtaksæfingum hjá U15 ára landsliði KSÍ í karlaflokki. Æfingarnar fara fram 11.-13. janúar og er Skagamaðurinn Lúðvík Gunnarsson þjálfari liðsins. Leikmennirnir úr röðum ÍA eru Birkir Hrafn Samúelsson, Jón Þór Finnbogason og Sævar Hrafn Sævarsson. Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ, en Lúðvík valdi alls...
Salka Hrafns Elvarsdóttir, markvörður úr ÍA, mun æfa með U-17 ára landsliði kvenna í knattspyrnu dagana 8.-11. janúar n.k. Lilja Björk Unnarsdóttir, fyrrum leikmaður ÍA, og núverandi leikmaður Selfoss er einnig í æfingahópnum.Alls eru 24 leikmenn boðaðir í þessa æfingatörn sem Magnús Örn Helgason landsliðsþjálfari boðar til. Leikmennirnir 24 koma frá 13 félögum, flestir frá Breiðablik...
Fréttir úr nærsamfélaginu eru nauðsynlegar - smelltu hér til að styðja grasrótina! Í bréfi sem ÍA og Knattspyrnufélag ÍA (KFÍA) sendu á bæjarráð þann 30. nóvember koma fram áhugaverðar tillögur um breytingar á Jaðarsbakkasvæðinu. ÍA og KFÍA telja að nauðsynlegt sé að fara í verulegar endurbætur á knattspyrnuvellinum við Jaðarsbakka. Öflugur hópur sjálfboðaliða gerði völlinn á...